Barnasýning Horn á Höfði, verður sýnd í Tjarnarbíói frá 15. september nk. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009 en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var svo sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Sýningin hlaut einróma lof en Horn á höfði er fjörleg sýning sem höfðar til ungra sem aldinna. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfssono og er hann jafnframt höfundur ásamt Guðmundi Brynjólfssyni.

Björn vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann veit ekki af hverju hann er með horn á höfðinu en veit að hann langar ekki til að líta út eins og geit. Því fær hann Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér við að rannsaka málið. Í leit sinni að sannleikanum upphefst atburðarás á mörkum ævintýris og veruleika. Á vegi þeirra verða kostulegir karakterar, Þórir haustmyrkur, klikkuðu kerlingarnar Þórkatla og Járngerður og treggáfuðu bófarnir Már og Kári. „Í svona ævintýrum er gett eð kenne leynemel“ (þýðing: Í svona ævintýrum er gott að kunna leynimál).

Leikarar eru Víðir Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Eva Vala Guðjónsdóttir sér um leikmynd og búninga, Vilhelm Anton Jónsson semur tónlist og Magnús Arnar Sigurðarson hannar lýsingu.