Hápólitíski gamanleikurinn Heilsugæslan var frumsýndur í Arnardal um sl. helgi fyrir troðfullu húsi og við mjög góðar undirtektir. Fullt var á 2. sýningu og nú þegar er uppselt á næstu tvær sýningar í Arnardal. Því hefur verið ákveðið að vera með 3 aukasýningar í Arnardal. Ein aukasýning verður núna á sunnudag 11. október kl. 15. Hinar tvær aukasýningarnar verða viku síðar eða sunnudaginn 18. október kl. 15 og kl. 19.30.
Í vikunni verða einnig opnuð útibú Heilsugæslunnar víða um Vestfirði. Þriðjudaginn 6. október verður sýning í Sjóræningjahúsinu á Patró. Daginn eftir verður sýnt á Café Riis á Hólmavík og á fimmtudag 8. október verður sýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri. Þessar sýningar hefjast allar kl. 20.30 og verður miðasala á staðnum. Kómedíuleikhúsið mun svo skella sér útfyrir Vestfirðina með Heilsugæsluna og er stefnt að því að opna útibú um land allt bæði fyrir og eftir áramót.
Íslendingar hafa löngum státað af besta heilbrigðiskerfi í heimi. Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum?
Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki. Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar.
Miðaverð á aukasýningarnar er aðeins 1.900.kr. Hægt verður að kaupa sérstaklega kökur og aðrar léttar veitingar. Miðasala á aukasýningarnar er þegar hafin í síma: 860 6062. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið: arnardalur@arnardalur.is
Menningarráð Vestfjarða styrkir Heilsugæsluna.