Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins, Hárið í flutningi Leikflokks Húnaþings vestra verður sýnd í Þjóðleikhúsinu þ. 14. júní næstkomandi. Miðasala er hafin á vef Þjóðleikhússins.
Í umsögn dómnefndar segir m.a. að „… sýningin sé unnin af miklum metnaði og hvergi slegið af kröfum við uppfærsluna […] Leikmynd, búningar og leikgervi, dansar, tónlistarflutningur, lýsing og hljóðblöndun skapa saman sterka heild. Stór leikhópurinn er skipaður hæfileikafólki sem nýtur sín í botn, og sterkur söngur, leikgleði og orka er allsráðandi. Afslappaður leikurinn skilar frásögninni á einlægan og einfaldan máta þannig að húmor og boðskapur verksins komast vel til skila.“