Föstudaginn 5. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Svartfugl, verk byggt á samnefndu ritverki Gunnars Gunnarssonar. Um er að ræða nýja leikgerð eftir þau Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur. Þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum. Tónlist og áhrifshljóð í verkinu eru samin af Einari Andréssyni og Einari Melax og er í lifandi flutningi spilað er á gömbu, steinaspil, ferðaharmoníum og borðhörpu.

Sýningar

Frumsýning – föstudaginn 5. feb. kl. 20.00 (Uppselt)
2. sýning – sunnudaginn 7. feb. kl. 17.00
3. sýning – laugardaginn 13. feb. kl. 20.00
4. sýning – sunnudaginn 14. feb. kl. 17.00
5. sýning – föstudaginn 19. feb. kl. 20.00

Fylgist endilega með á www.halaleikhopurinn.is en þar verður sýningarplanið uppfært reglulega. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um sýninguna og þá sem að henni koma. Hér að ofan er einungis verið að benda á fyrstu  fimm sýningarnar.

Miðasala er í síma 897-5007 og á midi@halaleikhopurinn.is

Miðaverð er 1500 kr. og 1000 kr. fyrir börn 12 ára og yngri.
Hópafsláttur fyrir 10 manns eða fleiri 1200 kr. miðinn. Greitt fyrirfram.
Ef keypt er heil sýning sem er 50 sæti þá kostar sýningin 50.000 kr.

Sýnt er í Halanum Hátúni 12, 105 Reykjavík. Gengið inn að norðanverðu.

{mos_fb_discuss:2}