Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 13. skiptið við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru þeir bræður Kjartan og Árni Pétur Guðjónssynir. Edda Heiðrún Bachman hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Hið sívinsæla leikrit Henrik Ibsens Dúkkuheimili var valin sýning ársins, Konan við 1000° leikrit ársins auk fjölda annarra verðlauna sem skiptast þannig:
Heiðurverð Sviðslistasambands Íslands 2015
Edda Heiðrún Bachman
Sýning ársins 2015
Dúkkuheimili
eftir Henrik Ibsen
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikrit ársins 2015
Konan við 1000°
eftir Hallgrím Helgason
Leikgerð – Hallgrímur Helgason, Símon Birgisson og Una Þorleifsdóttir
Í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikstjóri ársins 2015
Harpa Arnardóttir
fyrir Dúkkuheimili
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikari ársins 2015 í aðalhlutverki
Þór Tulinius
fyrir Endatafl
í sviðsetningu leikhópsins Svipir og Tjarnarbíós
Leikkona ársins 2015 í aðalhlutverki
Unnur Ösp Stefánsdóttir
fyrir Dúkkuheimili
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikari ársins 2015 í aukahlutverki
Ólafur Egill Egilsson
fyrir Sjálfstætt fólk
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins 2015 í aukahlutverki Halldóra Geirharðsdóttir
fyrir Billy Elliott
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikmynd ársins 2015
Ilmur Stefánsdóttir
fyrir Dúkkuheimili
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Búningar ársins 2015
Filippía I. Elísdóttir
fyrir Dúkkuheimili
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Lýsing ársins 2015
Björn Bergsteinn Guðmundsson
fyrir Dúkkuheimili
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Tónlist ársins 2015
Ben Frost
fyrir Black Marrow
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Hljóðmynd ársins 2015
Eggert Pálsson og Kristján Einarsson
fyrir Ofsa
í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Söngvari ársins 2015
Kristinn Sigmundsson
fyrir Don Carlo
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Dansari ársins 2015
Þyri Huld Árnadóttir
fyrir Sin
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Danshöfundur ársins 2015
Damien Jalet
fyrir Les Médusées
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Útvarpsverk ársins 2015
Blinda konan og þjónninn
eftir Sigurð Pálsson
Leikstjórn – Kristín Jóhannesdóttir
Í sviðsetningu Útvarpsleikhússins – RÚV
Sproti ársins 2015
Tíu fingur
fyrir Lífið – stórskemmtilegt drullumall
eftir Helgu Arnalds, Charlotte Böving, Sólveigu Guðmundsdóttur og Svein Ólaf Gunnarsson
í sviðsetningu leikhússins Tíu fingur
Barnasýning ársins 2015
Lífið – stórskemmtilegt drullumall
eftir Helgu Arnalds, Charlotte Böving, Sólveigu Guðmundsdóttur og Svein Ólaf Gunnarsson
í sviðsetningu leikhússins Tíu fingur