Laugardaginn 13. október kl. 14.00 verður leikritið Gosi eftir Karl Ágúst Úlfsson frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins. Verkið byggir á hinni heimsfrægu sögu ítalans Carlo Collodi um spýtustrákinn sem öðlast líf og ratar í einfeldni sinni í ótal ævintýri. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og tónlist er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Allir þekkja ævintýrið um Gosa. Leikfangasmiðurinn barnlausi, Jakob, sker út strengjabrúðu á töfrastund og brúðan lifnar við. Þarna reynist vera ótaminn og óstýrilátur strákur, Gosi að nafni. Hann óhlýðnast föður sínum og í stað þess að mæta í skólann stefnir Gosi á vit vafasamra ævintýra sem reka hann á ótrúlegustu staði. Með þátttöku í ævintýrunum skerpist samviska hans, hann lærir, þroskast og í lokin fórnar hann lífi sínu fyrir föður sinn. En vegna ástarinnar sem feðgarnir bera hvor til annars öðlast Gosi nýtt líf, raunverulegt hjarta sem slær og von um innihaldsríka ævi.
Leiksýning fyrir alla fjölskylduna.
Hljóð: Magnús H. Viðarsson
Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnardóttir
Dans: Birna og Guðfinna Björnsdætur
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Búningar: María Ólafsdóttir
Leikmynd: Vytautas Narbutas
Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Leikstjórn: Selma Björnsdóttir
Leikarar:
Gosi: Viðir Guðmundsson með önnur hlutverk fara:
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Davíð Guðbrandsson, Halldór Gylfason, Jóhann G. Jóhannsson, Jóhann Sigurðsson, Kristjana Skúladóttir, Magnús Jónsson, Pétur Einarsson og Sverrir Þór Sverrirsson (Sveppi) auk þess fara 12 börn með hlutverk í sýningunni.
{mos_fb_discuss:2}