Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir leikritið Gleðilega hátíð! laugardaginn 14. mars í Mánagarði. Sýningin er bráðskemmtilegur gamanleikur þar sem allt sem mögulegt getur fer á versta veg.
Í henni fylgjum við litlu leikfélagi á frumsýningardegi frá helvíti. Tæknivandræði, brókarsótt og tengdamömmur setja strik í reikninginn, en blessast þetta að lokum?

Verkið er samsköpunarverk úr smiðju leikhópsins. Leikverkið er einnig það hundraðasta sem Leikfélag Hornafjarðar setur upp. Leikstjóri er Birna Jódís Magnúsdóttir. Höfundar tónlistar og texta eru Björg Catherine Blöndal og Þorkell Ragnar Grétarsson. Aron Martin Ásgerðarson leiddi handritsvinnu og var listrænn ráðgjafi. Svandís Dóra Einarsdóttir var einnig listrænn ráðgjafi í ferlinu. Ljósameistari er Þorsteinn Sigurbergsson.

Miðasala er í símum 6916750 og 8929354 og á Facebooksíðu félagsins þar sem einnig má sjá hvenær sýningar eru.