Leikfélag Kópavogs frumsýnir fimmhurðafarsann Bót og betrun laugardaginn 1. febrúar kl. í Leikhúsinu að Funalind.
Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til þess ráðs að svíkja bætur út úr félagslega kerfinu, þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en af,þegar boltinn er einu sinni farinn að rúlla. Að endingu er hann rígfastur í eigin lygavef, fulltrúar Félagsmálastofnunar sækja að honum úr öllum áttum og eiginkonan er full grunsemda. Til að höggva á hnútinn þarf Eric að losa sig við upplogna bótaþega sína en vandinn vex bara með hverri viðleitni hans til að snúa við blaðinu.
Tíu leikarar taka þátt í sýningunni en fjölda annarra hefur auk þess unnið sleitukaust undanfarnar vikur að uppsetningunni. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson en hann þýddi jafnframt leikritið sem er eftir Michael Cooney. Miðasala er á Tix en nánari upplýsingar um sýninguna má sjá á vef Leikfélags Kópavogs.