ImageÁstir liggja til allra átta – kramin hjörtu?

Leikfélag Hveragerðis verður með kaffileikhús í nóvember í húsi félagsins, Völundi við Austurmörk.  Frumsýning verður laugardaginn 19. nóvember kl 20.30.

ImageSýndir verða þrír einþáttungar: Bara innihaldið og Á sama bekk eftir hugleikarann Sævar Sigurgeirsson  og Afturelding eftir annan hugleikara, Þórunni Guðmundsdóttur. Alls fara 7 leikarar með 9 hlutverk í þáttunum og er leikstjóri Sigurður Blöndal.   

Sýningar eru sem hér segir:
2. sýning sunnudag 20. nóvember
3. sýning miðvikudag 23. nóvember
4. sýning föstudag 25. nóvember
5. sýning sunnudag 27. nóvember

Allar sýningar hefjast kl 20.30 en húsið opnar kl 20:00.  Miðapantanir eru í síma 483-4727.  Miðaverð er kr. 1500,  fyrir ellilífeyriþega/öryrkja/hópa kr. 1200.