Stjórnarfundur: 27.06.2022 kl. 15:00  Staður: Þjónustumiðstöð

Fundarmenn:

Guðfinna Gunnarsdóttir, Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Gísli Björn Heimisson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.


Fundargerð:

  1. Leiklistarskólinn –
    1. Skólastýrurnar Dýrleif og Hrefna eru nú hættar störfum. Skólastýri á næsta ári verða þau Jónheiður Ísleifsdóttir og F. Elli Hafliðason.
    2. Karl og Halldóra á Reykjum hafa boðið okkur að halda skólann að Laugum í Sælingsdal á næsta ári. Stefnt að vettvangsferð þangað fljótlega eftir Verslunarmannahelgi. Óvíst er hver verður framtíðin á Reykjum.
    3. Skólanefnd tekur einnig breytingum. Framkvæmdastjóri setur upp nýtt skipunarbréf til 5 ára. Fráfarandi skólanefnd og nýir skólastjórnendur munu funda í ágúst í kjölfar vettvangsferðar að Laugum.  Stjórn mun skipa 5-7 manns í skólanefnd í kjölfar þess fundar.
  2. NEATA –
    1. Sara Rós Guðmundsdóttir og Hanna Tara Björnsdóttir verða okkar fulltrúar á NEATA Youth Camp 12.-15. ágúst 2022.
    2. Auglýsa þarf eftir þátttakendum á NEATA stuttverkahátíðinni í Örebro í september. Óvíst er hvort þátttakendur finnist, sérstaklega í ljósi þess að þeir þurfa að greiða allan kostnað sjálfir. Umsóknarfrestur er 15. ágúst.
      Stjórn lýsir vilja til þess að formaður og framkvæmdastjóri fari sem okkar fultrúar. Munum skoða fjárhagshliðina á því áður en endanleg ákvörðun er tekin.
    3. Búið er að gefa grænt ljós á NEATA-hátíð í Noregi 2024.
    4. NEATA Network fundaröðin – við þurfum að ákveða hver verður okkar fulltrúi fyrir 10. ágúst. Samþykkt að framkvæmdastjóri verður fulltrúi okkar á fundunum. Fundirnir eru þessir:
      1.-3. nóv. 2022 Helsinki
      14.-16. mars 2023 Vilnius
      29.-31. ágúst 2023 Reykjavík
  3. Fjármál – engin greiðsla kom frá ráðuneytinu í þessum mánuði. Ítrekaðar tilraunir til að ná í Arnfríði eða einhvern sem veit eitthvað um málið hafa hingað til reynst árangurslausar.
  4. Framhaldsaðalfundur ákveðinn lau 17. sept. kl. 10.00-13.00. Fundarboð sent út fljótlega í næstu viku og frestur til að tilkynna þátttöku 15. ágúst. Rennum blint í sjóinn með þátttöku, sérstaklega þar sem boðið verður upp á þátttöku á vefnum. Ákveðið hvar fundurinn verður haldinn þegar þátttökutölur liggja fyrir. Stjórn mun ræða dagskrá fundarins í spjalli og skal hún liggja fyrir áður en fundarboð eer sent út. Hugmyndir m.a. um kynningarmál, stjórnun leikfélaga auk þess sem afgreiða þarf ársreikning.
  5. Úthlutun 2022 – Gengið frá tillögum stjórnar að úthlutun á ríkisstyrk.
    Félag Ríkisstyrkur + Viðbót 3 mill.= Samtals
    Freyvangsleikhúsið 1.477.032 + 260.653 = 1.737.685
    Hugleikur 1.569.069 + 276.895 = 1.845.964
    Leikdeild UMF Biskupstungna 633.492 + 111.793 = 745.285
    Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms 633.492 + 111.793 = 745.285
    Leikfélag Fljótsdalshéraðs 633.492 + 111.793 = 745.285
    Leikfélag Hafnarfjarðar 1.370.015 + 241.767 = 1.611.782
    Leikfélag Hornafjarðar 823.540 + 145.330 = 968.870
    Leikfélag Hólmavíkur 633.492 + 111.793 = 745.285
    Leikfélag Húnaþings vestra 746.186 + 131.680 = 877.866
    Leikfélag Hörgdæla 848.540 + 149.742 = 998.282
    Leikfélag Keflavíkur 1.663.730 + 293.599 = 1.957.329
    Leikfélag Kópavogs 176.767 + 31.194 = 207.961
    Leikfélag Mosfellssveitar 1.352.774 + 238.725 = 1.591.499
    Leikfélag Norðfjarðar 5.000 + 882 = 5.882
    Leikfélag Sauðárkróks 1.266.984 + 223.585 = 1.490.569
    Leikfélag Selfoss 1.213.204 + 214.095 = 1.427.299
    Leikfélag Sólheima 625.573 + 110.395 = 735.968
    Leikfélag Vestmannaeyja 633.492 + 111.793 = 745.285
    Leikfélag Ölfuss 25.000 + 4.412 = 29.412
    Stúdentaleikhúsið 669.126 + 118.081 = 787.207
    Þjónustumiðstöð skvt. samþykkt aðalfundar = 1.500.000

Fleira ekki gert. Fundargerð ritaði Hörður