Stjórnarfundur: 10.04.2026 kl. 17:00 Staður: Þjónustumiðstöð og Zoom
Fundarmenn:
Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Jónheiður Ísleifsdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Bjarklind Þór, Daði Freyr Þorgeirsson, Úlfhildur Örnólfsdóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.
Fundargerð:
Dagskrá
- Aðalfundur
- Hverjir stjórnarmanna mæta á aðalfund?
- Ólöf, Jónheiður, Anna María, Úlfhildur, Bjarklind, Daði (laugardagur), Hanna Margrét, Sigrún
- Hörður
- Sigga Lára, Gerður, Sigga úr kjörnefnd koma
- Verkaskipting á aðalfundi
- Anna María les menningarstefnu
- Hörður staðfesting nýrra félaga og félög bætast við
- Ólöf les skýrslu stjórnar
- Sigrún og Bjarklind lesa drög að starfsáætlun næsta árs og skipa í starfshópa
- Hörður og Daði kynna breytingu á árgjaldi
- Hörður kynnir ársreikninga
- Leikfélag Keflavíkur sér um fundarstjóra – Birgitta
- Athugað verður með ritara úr hópi fundargesta og mögulega vill Fanney taka þetta að sér – Hörður skoðar þetta.
- Farið yfir starfsáætlun
- Starfsráð hefur starfað í ár og stjórn leggur til að það haldi áfram störfum.
- Haldið var upp á 75 ára afmæli BÍL – afmælisnefnd, vefveisla var haldin í vetur þar sem unnið var með texta og send inn og leikfélögin hvött til að halda veislu og stuttverkahátíð í sambandi við aðalfund.
- Hópar verða hvattir til að bæta við á starfsáætlun
- Stjórnarkjör – hverjir gefa kost á sér áfram?
- Hanna Margrét (gefur kost á sér áfram), Jónheiður (býður sig ekki fram áfram) og Anna María (gefur kost á sér áfram) eiga að ganga úr stjórn. Daði (gefur kost á sér áfram) og Pétur (gefur kost á sér áfram) eiga að ganga úr varastjórn.
- Stuttverkahátíð – Haldin fös. 1. Maí
- Fimm félög hafa meldað sig.
- Hörður fundar með afmælisnefnd og farið yfir praktísk atriði og sendur verður póstur á hópana með nákvæmari dagskrá föstudagsins.
- Leiklistarskólinn
- Metaðsókn á 4 námskeið (54 nemendur)
- Rætt um hvort hægt væri að stækka skólann en skólanefnd telur ekki æskilegt að stækka skólann með fleiri námskeiðum eða auknum nemendafjölda.
- Skólinn verður 30 ára á næsta ári – skólanefnd er að skoða hvað er hægt að gera til að halda upp á það.
- NEATA
- NEATA Festival Rakvere 9.-13. júlí 2026
- Fulltrúi Íslands verður Hugleikur með Fjöllin vakna – stjórn samþykkir útnefningu þeirra.
- Hörður verður fulltrúi á NEATA -fundi sem verður á sama tíma
- NEATA Working Committee – Kjör forseta
- Komið hefur verið að máli við Hörð um hvort hann gefur kost á sér og hann vildi ræða þetta við stjórn áður en hann svaraði. Stjórn lýsir sig samþykka.
- Við erum eina landið sem á ekki fulltrúa í NEATA Youth – 18-25 ára – yfirleitt eitthvað í gangi í kringum hátíðir, workshop eða námskeið. Workshop sem eru styrkt. – Mögulega væri hægt að auglýsa þetta í skólanum í sumar.
- Future NEATA festivals:
- Danir eru að skoða að halda hátíð samhliða afmæli DATS 2028
- Iceland (2030) – Rætt um hvernig við viljum haga skipulagningu. Stjórn leggur til að stofna nefnd þeirra sem þekkja til hátíðarinnar því það er í mörg horn að líta þegar kemur að skipulagningu hátíðar. Hörður leggur til að kynna þessa hátíð undir önnur mál á aðalfundinum í ár og óska eftir nefndarfólki.
- Scenkraft Norden
- DKK 110.000 styrkur frá Nordisk Kulturfond – þessi styrkur mun fara í að semja könnun.
- Hugmyndin er að safna tölfræði yfir starfsemi áhugaleikfélaga.
- Hörður sækir um styrk fyrir þeirri vinnu sem fara þarf fram við fyrirlögn könnunar hér á landi.
- Leiklistarvefurinn-uppfærsla
- Samþykkt var á síðasta aðalfundi að Þjónustumiðstöð fengi aukið framlag næstu ár til að uppfæra vef og leikritasafn.
- Verktaki hefur verið fenginn í verkið.
- Tekið verður til í vefnum og sett upp ný valmynd
- Leikritasafnið-uppfærsla
- Nýtt leikritasafn vinnuheiti Kvasir – sem leyfir ríkari skráningu á uppsetningum og leikritum.
- Í dag eru vel á fimmta þúsund titlar í safninu en skráning á þeim er misnákvæm og það hafa verið uppi allskonar hugmyndir um hvernig hægt er að bæta þessa skráningu.
- Hörður hefur verið að vinna með verktaka í gervigreindarforriti sem getur greint leikrit og nú er komin lausn sem gerir kleift að hlaða upp handriti á PDF formi og fá til baka CSV skrá (með fullri greiningu á verkinu, þ.m.t.. útdrátt) sem hægt er hlaða beint upp í Leikritasafnið án frekari vinnslu.
- Önnur mál
- Engin önnur mál
Fundargerð ritaði Jónheiður


