Stjórnarfundur: 16.06.2025 kl. 16:30  Staður: Kleppsmýrarvegi 8 og Zoom

Fundarmenn:

Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Jónheiður Ísleifsdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Bjarklind Þór, Daði Freyr Þorgeirsson, Úlfhildur Örnólfsdóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.


Fundargerð:

Mættir: Jónheiður, Hanna Margrét (zoom), Ólöf, Hörður, Anna María, Sigrún, Bjarklind, Úlfhildur, Daði (zoom)

  1. Rætt um endurskoðun á úthlutunarreglum. 

Í hverju felst frumkvæði? Ef sýning fer í þjóðleikhúsið fær hún alltaf frumkvæði og einnig þegar leikfélög eru að byrja aftur. Annað er að geðþótta ákvörðun stjórnar. Yfirleitt hefur verið veitt fyrir frumsamda tónlist.

Tillaga er að því að hækka styrk fyrir námskeið og breyta tímamörkum. 

Styrkur til nemenda í Bandalagskólanum verður hækkaður í 15.000 en gerð verður krafa um að nemendur fái ekki lægri styrk en þetta frá leikfélaginu.

Styttra námskeið – 12-29 tímar – 20.000
Lengra námskeið – 30+ tímar – 40.000

Samstarfssýningar – hugmynd um að skilað sé skýrslu um fjármál sýningar og að veita hálfan styrk til samstarfssýninga. Yrði auglýst og tæki gildi á næsta ári. Þessar breytingar eru samþykktar af stjórn.

  1. Úthlutun

Byrjað var að fara yfir tímamælingar á öllum sýningum sem sótt var um styrk fyrir. Einhverjar breytingar voru gerð frá skráðum mínútufjölda.

Þá var farið yfir umsóknir um styrk fyrir frumflutning. Einni umsókn var hafnað:

Leikfélag Eyrarbakka fyrir Stöndum saman

Næst var farið yfir umsóknir um styrk fyrir sérstakt frumkvæði þar sem nokkrum umsóknum var hafnað:

Freyvangsleikhúsið – 14. Jólasveinninn
Leikfélag Hólmavíkur – Goðdalir
Leikfélag Keflavíkur – Glanni glæpur í Latabæ

Þá var farið yfir umsóknir um styrk fyrir námskeið haldin af félögunum og var tveimur um sóknum hafnað

Litli leikklúbburinn – of stutt
Leikfélag Hveragerðis – Þátttakendalista vantar

Síðast var farið yfir nemendur í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga og fjöldi nemenda skráður hjá þeim félögum sem sóttu um.

Þá var reiknaður fullur styrkur og var hann 519.438. Fundi var slitið 19:30.

Fundargerð ritaði Jónheiður