Stjórnarfundur: 24.10.2025 kl. 16:30 Staður: Kleppsmýrarvegi 8 og Zoom
Fundarmenn:
Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Jónheiður Ísleifsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Bjarklind Þór, Daði Freyr Þorgeirsson, Fanney Valsdóttir, Pjetur St. Arason, Úlfhildur Örnólfsdóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.
Fundargerð:
Stjórnarfundur BÍL
Mættir: Ólöf, Sigrún, Anna María, Bjarklind, Úlfhildur, Daði Freyr, Hanna, Fanney, Jónheiður, Pétur, Ingveldur (gestur), Hörður
- Mónakóför ÓÞ og HS – Stutt frásögn
Hörður og Ólöf segja frá ferð á þing AITA þing í Mónakó og það var mjög gaman og mikil upplifun. Það var kosinn nýr forseti IATA – Sofia Wegelius, sem starfaði áður með NEATA. Þau sáu 5 sýningar og fóru á workshop og Ólöf sagðist hafa fengið hugmyndir af hlutum sem við gætum gert til að kynnast betur á okkar þingum. Fólk ræddi saman um ýmsa hluti í litlum hópum. Næsta þing og leiklistarhátíðir verða eftirfarandi:
-
- Nýja Sjáland 2027
- Monaco 2029
- Kína 2031
Svo var NEATA fundur og NEATA party. Og svo náttúrulega rauða og hvíta partýið sem var mjög glæsilegt.
- Afmælisnefnd – Inga mætir á fundinn
Ingveldur, Beta, María Björt og Erna Hallbera eru í afmlæisnefndinni. Þær funduðu fyrir norðan í September og lögðu drög að því að vera með viðburð fyrir áramót og síðan væri fókus á þingið í vor og stuttverkahátíð í sambandi við það.
Viðburður fyrir áramót – frumsamin texti sem tengist afmæli – send beiðni út á aðlidarfélögin að gera eitthvað við þennan texta. Þessir gjörningar yrðu settir á netið og svo væri ákveðin dagsetning þar sem fólk gæti komið saman og horft saman. Hörður getur streymt á ákveðnum tíma en leikfélögin myndu auglýsa viðburðinn í sínu nærsamfélagi og halda upp á afmæli bandalagsins með kaffi og kökum. Tímamörk atriðis 2-3 mín. Stefnt á 7. Des – kl. 15.
Stuttverkahátíð – send út einhvern ramma sem myndi vera sameiginlegur á milli verkanna sem yrðu sett upp á þinginu.
- NEATA
Festival í Eistland, Rakvere 9.-13. júlí 2026 – Hörður segir frá því að loksins verði NEATA leiklistarhátíð aftur eftir langt hlé. Skilyrði: allt að 10 manna hópur, standa sjálf straum af ferðakostnaði, en yfirleitt er uppihald greitt. Það gæti þó orðið öðruvísi núna. Hörður kallar eftir hugmyndum að nýju félagi sem gæti verið fulltrúi íslands. Yfirleitt ekki lengri sýningar en 30-60 mín og gott að þær séu sjónrænar. Rætt um flug – hægt að fá flug með Icelandair og Finnair með millilendingu í Helsinki.
NEATA Youth fulltrúi – 18-25 ára – Við erum að leita að fulltrúa – nokkur nöfn nefnd Víkingur, Eden, María Björk.
Workshop Day – verður aftur bráðum. Hörður mun auglýsa, síðast skráði engin sig frá Íslandi.
World Theatre Day message – Texti eða ljóð sem verður þýtt á öll tungumál og svo mega öll löndin gera eitthvað við það.
- Helsinkifundur 7.-9. okt.
Skrifstofu mót – starfsmenn skrifstofanna á Norðurlöndunum hittust og voru að ræða verkefni sem snýst um það að safana tölfræði um áhrif áhugaleiklistarhreyfingarinnar á Norðurlöndunum. Finnarnir eru að sækja um styrki til að senda út spurningalista til allra áhugaleikfélag á norðurlöndunum um stöðu mál sem er svo hægt að vinna úr og beit sem þrýstingi á stjórnvöld.
- International Project – Drama Education for Disabled People/ Digital Book in English
Finnland og Noregur (Sanna og Ragnhild) hafa verið í samstarfi og heimsótt hvor aðra, Færeyjar hafa bæst við og þær langar að koma til Íslands líka. Þær eru að vinna að kennsluefni um leiklistarkennslu fyrir fatlaða. Hörður er búin að finna hóp sem heitir Fjölleikhúsið – Margrét Pétursdóttir – Listin.is – og hafði samband við hana og tengdi hana við Sönnu og Ragnhild. Aðrir leikhópar sem minnst var á Tjarnarleikhópurinn.
- Húsnæðismál
Hörður heyrði í Stefáni leigusala fyrir nokkrum vikum og það er komin hreyfing á málin og má gera ráð fyrir því að á næsta ári geti eitthvað farið að gerast. Þegar þar að kemur þurfum við að fara að skoða okkur um eftir nýju húsnæði. Við erum með 3 mánaða uppsagnafrest. Ólöf stingur upp á því að hafa vinnudag og taka til á skrifstofunni og henda efni sem við þurfum ekki að geyma svo við séum ekki að flytja með okkur óþarfa dót. Dagsetning á tiltektardag. Rætt um að hafa þetta tengslum við stjórnarfund í mars.
- Leikfélag Vestmannaeyja – Leikstjóramál
Það kom um leiðindamál. Leikstjóri var látinn fara 2 vikum fyrir frumsýningu. Leituðu til Harðar með málið og enduðu sennilega með að greiða honum fulla upphæð. Hörður er með sniðmát að samningi og hefur bætt riftunarákvæðum í hann. Félögin ættu að leita meðmæla með leikstjórum og skoða sína samninga. Getum rætt þetta á næsta þingi.
- Fjárlög – Starfsráð
Starfsráð er ennþá við störf og hittust um daginn (Sigga Lára, Axel og Hörður). Fjárlög hafa verið kynnt og þar er 30,4 milljóna framlag. Starfsráð og framkvæmdastjóri eru sammála því að halda áfram að leita eftir leiðréttingu á styrk til félaganna upp að 50 milljónum sem er uppreiknaður styrkur frá því fyrir hrun.
- Samningur við RSÍ
Hörður hitti Ragnheiði og þau fóru yfir málin og hugmyndin er að gera nýjan samning. Hörður hefur sett upp skjal með tölum og leggur til að greiðsla til höfundar fyrir verk yfir 90 mínútum verði að lágmarki 180 þúsund og aðrar tölur miðast út frá því.
- Kaupmannahöfn – Sub-agent meeting 27.28. nóv.
MTIshow hefur breytt fyrirkomulagin hjá sér þannig að nú þurfa allir að sækja um sjálfir. Nordiska er stærsta umboðsskrifstofan sem Hörður er í samskiptum við. Honum hefur verið boðið á fund hjá Nordiska umboðsskrifstofunni. Hörður hefur veitt tveimur aðilum aðstoð og rukkað fyrir það 30 þúsund. Þeir greiða hótel en Bandalagið greiðir flug.
- Ársrit 2025
Ólöf skrifar pistil fyrir miðla og ársritið, annars er árssritið tilbúið til útgáfu.
- Aðalfundur 2026
Aðalfundur verður í Reykjanesbæ og það verður stuttverkahátíð föstudaginn 1. Maí. Ólöf er komin með tilboð frá þremur hótelum. Hótel Keflavík og Park inn eru á svipuðu verði og munu hún og Brynja skoða það. Athuga hvort einhverjir vilji koma á fimmtudegi og gista og að mæting yrði upp úr hádegi á föstudeginum. Síðast kostaði herbergi fyrir 2 í eina nótt var á 17.500 kr.
Fundargerð ritaði Jónheiður


