Stjórnarfundur: 03.05.2025 kl. 17:15  Staður: Vatnsholt

Fundarmenn:

Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Jónheiður Ísleifsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Bjarklind Þór, Daði Freyr Þorgeirsson, Fanney Valsdóttir, Úlfhildur Örnólfsdóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.


Fundargerð:

Stjórnarfundur BÍL 3. maí 2025

Staðsetning: Vatnsholt

  1. Ólöf óskar nýrri stjórn til hamingju. Og býður Sigrúnu velkomna í aðalstjórn og Úlfhildi í aðalstjórn. Stjórn skiptir með sér verkum.
    • Ólöf formaður
    • Anna María varaformaður
    • Jónheiður ritari
    • Sigrún meðstjórnandi
    • Hanna Margrét meðstjórnandi
    • Daði Freyr, Úlfhildur, Fanney, Pétur og Bjarklind 
  1. Leikfélag Vestmannaeyja buðu til næsta aðalfundar árið.
  2. Sigrún ætlar að setja saman gátlista með þeim atriðum sem gott er að fara yfir með aðildarfélögunum og í haust mun hver stjórnarmeðlimur hitta sín fósturfélög á fjarfundi og fara yfir gátlistann.
  3. Úthlutunarfundur ákveðinn 16. júní kl. 16:30. Umsóknarfrestur er til 8.júní. Hörður mun senda út félagapóst og minna á umsóknarfrest. Fanney kemst ekki á fundinn en getur verið búin að fara yfir einhverjar umsóknir. Ólöf hefur samband við Pétur og Hönnu til að láta þau vita af fundi.

Fundargerð ritaði Jónheiður