Stjórnarfundur: 12.04.2025 kl. 09:30 Staður: Kleppsmýrarvegi 8
Fundarmenn:
Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Gísli Björn Heimisson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Daði Freyr Þorgeirsson, Sigrún Tryggvadóttir, Pjetur St. Arason, Fanney Valsdóttir, Bjarklind Þór, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.
Fundargerð:
- Aðalfundur BÍL 2025
- Vinnustofur á aðalfundi á föstudagkvöldi:
- Friðþjófur Þorsteinsson – Vesen og verkferlar (45 mín og spjall)
- Hörður Sigurðarson – Hlutverk þjónustumiðstöðvar (leyfismál og fleira)
- Markaðsmál. Heyra í Bibba – hvort hann er til í að vera með erindi um markaðsmál á samfélagsmiðlum, Hörður heyrir mögulega í öðrum ef Bibbi getur ekki.
- Vinnustofur á aðalfundi á föstudagkvöldi:
- Aðalfundarstörf
- Rætt um hópavinnu, Sigrún ræðir um hvort við ættum að taka saman punkta úr hópavinnu, sem ná ekki inn í starfsáætlun, eigum við að gera einhvern nánari lista eða vinna meira með það eða láta duga það sem fer inn í starfsáætlun – mikilvægustu atriði úr hópavinnu eiga að rata þangað inn.
- Anna María spyr hvort hægt sé gera kröfu um að fulltrúar frá þeim sem sækja um athyglisverðustu áhugaleiksýninguna mæti á Bandalagsþing. Umræður í hópnum um hvort væri hægt að gera kröfu um þetta. Ekki talið líklegt að hægt sé að gera kröfu um þetta.
- Leikfélag Selfoss skaffar fundarstjóra og Jónheiður bauð sig fram sem fundarritara.
- Sigga Lára og Sigrún eru í kjörnefnd en fyrst Sigrún er í stjórn þá er stungið upp á því að fá einn fulltrúa í viðbót til að aðstoða kjörnefnd og verður sá valin á fundinum. Það þarf að bæta því á dagskrá.
- Anna María ætlar að lesa menningarstefnu Bandalagsins.
- Hörður sér um staðfestingu nýrra félaga, Þórshöfn og Stafholtstungur. Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður í ár – vantar formlega tilkynningu.
- Skýrslur nefnda: Elli flytur skýrslu skólanefndar.
- Skýrsla frá starfsráði – Hörður og Sigga Lára fara yfir hvað hefur verið gert og svo kemur tillaga um áframhaldandi starf undir tillögur.
- Hópavinna
- Leggja inn í hópastarf endurskoðun úthlutunarreglna og upplýsingar um auka styrkinn sem við eigum von á ofan á styrk til félaganna og tillögur um nýtingu hans – stjórn setur punkta á blað um þær breytingar sem við höfum rætt – umræður um það verða á facebook fyrir fund, Hörður sér um það – og dreyfir með starfsáætlun og núverandi úthlutununarreglum.
- Sigrún sér um að skipa í hópa og velja hópstjóra í starfshópa.
- Kjörnefnd þarf að hafa samband við þá sem eiga að ganga úr stjórn – Hörður hefur samband við þau um að heyra í fólki.
- Aðalstjórn: Ólöf og Gísli ljúka setu
Varastjórn: Sigrún, Bjarklind og Fanney ljúka setu
- Aðalstjórn: Ólöf og Gísli ljúka setu
- Árgjald – Gísli sér um að uppreikna árgjald og búa til tillögu að nýju árgjaldi.
- Starfsáætlun
- Rekstur þjónustumiðstöðvar
Allt hefur starfað eins og venjulega. Skóli var í fyrra og er full skipaður í ár. Elli mun auglýsa laus pláss fyrir höfunda sem hluta að skýrslu skólanefndar - Leita eftir auknum framlögum úr opinberum sjóðum
Starfsráð sett á laggirnar til að sinna þessum lið.- Starfsráð – Aukafjárveiting. Starfsráð var skipað (Sigga Lára, Benni, Ylfa) Sett var fram nefndarálit um að ríkisstyrkur til leikfélaganna yrði hækkaður um 20 milljónir á þessu ári.
- Hugmynd frá stjórn að nýtingu þessarar aukafjárveitingar:
- 8 milljónir leggjast við úthlutunarpott í ár (15,8+8)
- 8 milljónir leggjast á úthlutunarpott á næsta ári (15,4+8)
- 2 milljónir til BÍL fyrir uppfærslu á leiklistarvef og leikritasafni
- 2 milljónir til BÍL fyrir rekstur þjónustumiðstöðvar fyrir árið 2026
- Halda upp á 75 ára afmæli Bandalagsins
Ekki er hafin skipulagning á afmæli og við munum óska eftir tillögum frá starfshópum. - Halda vinnustofu í markaðsmálum og stjórn leikfélaga
Verður á föstudagskvöldi (sjá að ofan) - IATA þing og fundur með Nordiska
- AITA/IATA þing í Monaco 23.-24.8 og hafa framkvæmdastjóri og formaður hug á því að fara. Einnig verður haldin NEATA ársfundur í Monaco í sambandi við IATA. Stjórn samþykkir að að þau fari á þingið.
- Nordiska fundur. Herði var boðið á fund með Nordiska umboðsskrifstofunni daginn áður en þingið verður haldið og er möguleiki að fara á hann „í leiðinni“ án þess að auka kostnað að ráði. Hörður mun kanna þá möguleika og hefur samþykkt stjórnar til að samþætta þetta.
- Leiklsitarskóli BÍL
- Það verða þrjú námskeið í skólanum í ár og eru þau öll orðin full og biðlisti á Leiklist 2. Einhver pláss eru laus fyrir höfunda í heimsókn.
- Rætt var um að vera skýr með matarkröfur til Sigurðar og að það væri gaman að fá ísbílinn í heimsókn einhvertímann í boði BÍL.
- Einnig var rætt að það var óeðlilega hár rekstrarafgangur af skólanum í fyrra en hann gerði það þó að verkum að árseikningur var jákvæður.
Fleira ekki rætt. Fundargerð ritaði Jónheiður


