Stjórnarfundur: 16.11.2024 kl. 11:00 Staður: Kleppsmýrarvegi 8 & Zoom
Fundarmenn:
Ólöf Þórðardóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Gísli Björn Heimisson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Daði Freyr Þorgeirsson, Sigrún Tryggvadóttir, Pjetur St. Arason, Bjarklind Þór, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.
Fundargerð:
- Aðalfundur 2025:
Höfum tekið tilboði frá Hótel Vatnsholti. U.þ.b. 20 mín. akstur frá Selfossi. Fundur, gisting og veitingar
Dags 2-4 maí 2025.
Rætt um að hafa vinnustofu í stjórnun leikfélaga á föstudagskvöldinu.
Markaðsmál og innri stjórnun. Finna fólk sem er til í að tala um þessa hluti.
Bæklingur um stjórnun leikfélaga – spurning um að finna hann
Fyrirspurnir hafa borist til Harðar: Hvernig setur maður upp leiksýningu frá A-Ö. Hvað þarf tæki, tól, fólk, hlutverk, tímalína, fjárhagur, markaðsmál snertifletir við stjórn.
Ákveðið var að hafa „Uppsetning leiksýningar“ vinnustofu á föstudagskvöldinu.
Ólöf stingur upp á rútuferð með Bjarnar Harðar – álfar og huldufólk í kringum Selfoss. - 75 ára afmæli BÍL 2025:
Rætt um hvað við ætlum að gera. Anna María stingur upp á jarðaförum og krönsum. Hörður talar um stuttverkahátíð – væri hægt að lengja aðalfund og hafa stuttverkahátíð þar eða hafa hátíð á lokakvöldi. Gísli stingur upp á að þeir sem sækja um áhugaverðustu áhugaleiksýninguna sýni stutt atriði úr sýningunum á lokakvöldi. Hörður tala um sameiginlegt leikrit þar sem fólk af öllu landinu leikur saman. Sigrún talar um að ákveða að okkur langar til að gera eitthvað skemmtilegt á lokakvöldinu.
Daði stingur upp á samstarfi við þjóðleikhúsið þar sem þau eiga líka 75 ára afmæli á næsta ári. – spurning um að finna flöt á samstarfi í kringum afmælin – mögulega kynning á opnu húsi hjá Þjóðleikhúsinu.
Horfa eftir tækifærum til að nota þetta tilefni til að sækja styrki til stjórnvalda.
Hugmynd að setja saman afmælismyndband, klippur úr sýningum (3-6 sek) fyrir myndband sem við gætum sent út – Sigrún stingur upp á formannafundi þar sem þetta er rætt. Gefa format leiðbeiningar, með hljóði eða ekki. Hörður sendir póst og boðar zoom fund, stjórnarmeðlimir hafa samband við sín fósturfélög og hvetja fólk til að mæta á fundinn. Setja deadline, world theaterday er í mars.
Ólöf talar um að sveitarfélögin séu að setja pening í forvarnir barna og leikfélögin gætu sótt fjármagn í þessa sjóði.
Einnig er almenn umræða að ná sambandi við innflytjendur og að auglýsa hvernig hægt er að kynna að leikfélögin séu öllum opin. - Heimldarmynd – Anna María. Kominn framleiðandi – Krauma Kristján Kristjánsson – fundur með honum fljótlega. Þau langar að klára í jan, dregst sennilega fram á vorið.
- Boð á sýningu til stjórnar frá Leikfélaginu Borg á Svörtu kómedíuna. Frumsýning í gær, lokasýning 7. Des.
- Nordic Youth Project – Dream concept – Local Youth 17.-23 ára – 10-15 mín. verk. Haust 2025. Verið að útvega styrki. Semja á 10-15 mínútna langa senu í hverju landi út frá ákveðnu þema. Þau eru að sækja styrki fyrir þessu verkefni. Jakob frá DK myndi hitta hvern leiðbeinanda í sínu landi og svo þarf að finna 2-3 unga þátttakendur til að taka þátt í að búa til senuna sem yrði hluti af stærra verkefni sem yrði svo sett saman úr senum frá Norðurlöndunum. Hörður sagði jafnframt frá öðrum verkefnum.
- NEATA mál:
Nýr General Secretary kosinn, Hanne Kjersti S. Iversen frá Noregi. - Starfsráð:
Töluverð vinna fyrir stjórnarslit og ráðsmenn töluðu við flesta aðalmenn í fjárlagaefnd auk fleiri. Komin er nýr frá Noregi. Ekki hefur tekist að fjármagna fleiri fundi. Er búið að vera starfandi síðan síðsumars. Vinna hefur farið fram við að ná í alla aðalmenn í fjárlaganefnd. Stjórnarslit höfðu áhrif á þessa vinnu. Þau halda áfram að reyna að ná tali af stjórnmálamönnum. Mögulega væri hægt að semja staðlað bréf til allra frambjóðenda og spyrja um afstöðu þeirra til menningar og áhugaleikfélaga og mun Hörður setja saman þannig bréf. Og notar umsögn til fjárlaganefndar sem grunn.
Skýrsla hefur komið fram um hagræn áhrif menningar og hefur fólk verið að pósta því, sem er hið besta mál.
Hægt væri að reyna að ná tali af Lilju og athuga hvort væri hægt að athuga hvort hægt er að næla í skúffupening. Mögulega tengja það uppfærslu á vefnum og leikritasafninu. - Fjárhagsstaðan:
Erum í þokkalegum málum. Október var metmánuður í sölu í leikhúsbúðinni, sala fór yfir milljón og hefur áður aldrei verið hærri en 500.000 kr. Það gætu verið sóknarfæri í því að auglýsa Leikhúsbúðina betur.
Einhver hækkun á samningi við ráðuneytið gerir það að verkum að við þurfum ekki sækja jafnmikinn pening af styrknum til leikfélaganna. - Vefurinn:
Leikritasafnið & Leikhúsbúðin. Brýnt er að uppfæra vefinn, leikhúsbúðina og leikritasafnið. Leikritasafnið er ákveðin flöskuháls því uppfærslur hafa alltaf áhrif á það. Hægt væri að verja peningum í að uppfæra fyrst vefinn og tengingu við leikritasafnsgrunninn eins og hann er. Síðan þarf að búa til nýjan grunn og tengja hann inn á vefinn og jafnvel leyfa fólki að leita eftir handritum, sem sagt að smíða leitarvél fyrir handritin. Einnig þarf að færa gögnin á milli eða endurskrá þau í nýjan grunn.
Leitarvél, skráningarform, síður til að skoða upplýsingar.
Einnig væri sniðugt að automatisera ferlið í kringum dreifingu á rafrænum handritum. Vatnsmerkingar á handritum. Í dag eru þetta mörg handrit.
Samþykkt er að setja pening í að byrja þessa vinnu. - Úthlutunarreglur:
Ýmsar mögulegar breytingar ræddar. Samsettar dagskrár og námskeiðsstyrkir. Lengd námskeiða og styrkur fyrir námskeið 18-35 klst. 10.000 kr. – Tillaga að stytta niður í 16 tíma. 36+ klst. 20.000 kr. Styrkir til leikfélaga vegna nemenda í Bandalagsskólanum. Í dag er veittur 5.000 kr. Styrkur per nemanda. Hugmynd að hækka styrk um helming í 10.000 kr. Ákveða á næsta stjórnarfundi hvernig breytingar við viljum á úthlutunarreglum og ræðum um styrki fyrir samsettar dagskrár (leiksýning vs. Samsett dagskrá).
Fleira ekki gert. Fundargerð ritaði Jónheiður


