Stjórnarfundur: 28.10.2022 kl. 16:45 Staður: Zoom
Fundarmenn:
Guðfinna Gunnarsdóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Jónheiður Ísleifsdóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.
Fundargerð:
Skyndifundur stjórnar til að fara yfir fjárhagsstöðuna.
Fr.kv.stjóri er búinn að undirrita tímabundinn samning sem gildir 1. jan.-31. des. 2022 og tryggir okkur 6 milljóna kr. framlag frá ráðuneytinu. Það er þó 1 millj. kr. minna en við fengum í fyrra. Í samningnum eru miklir niðurskurðarfyrirvarar og líklegt að erfitt verði að fá hækkun ef og þegar nýr samningur verður gerður.
Staðan á reikningnum er núna 1.3 millj. í mínus. Eigum heimild fyrir 2 millj. Nokkur félög eiga inni hjá okkur 3 millj. sem teknar voru til hliðar af verkefnastyrk félaganna vegna Covid-ástands.
Fr.kv.stjóri benti á tvennt sem gerir það að verkum að staðan er svo slæm sem raun ber vitni:
Í fyrsta lagi fengum við ekki (og fórum reyndar ekki fram á) aukaframlag af verkefnastyrk félaganna eins og venjulega, á síðasta ári, 2021. Það er í fyrsta skipti sem skrifstofan hefur ekki fengið slíkt framlag síðan a.m.k. árið 2005. Staðan væri líklega 1.5-2 millj. kr. skárri ef það hefði verið gert.
Í öðru lagi veldur breytingin sem gerð var á innheimtu árgjalda því að þau skiluðu ca. 1.3-1.4 millj. minna en verið hefur. Öll félög voru rukkuð um hálft árgjald í haust og ætlunin að rukka aftur miðað við starfsemi þeirra í vor.
Við eigum aðeins eftir að fá 1.950.000 kr. frá ráðuneytinu á yfirstandandi ári svkt. þessum samningi. Það nægir okkur líklega til að lifa af fram á næsta ár.
Við höfum svo eftirfarandi möguleika til að brúa bilið þar til nýr samningur hefur verið gerður:
1. Fá „lánaðar“ 1.5 millj. af húsnæðissjóðnum
2. Rukka viðbótarárgjaldið strax af þeim félögum sem hafa frumsýnt í haust og eiga því að greiða a.m.k. 1 árgjald.
Við göngum út frá því að við fáum á næstu 2-3 mánuðum nýjan samning við ráðuneytið sem gildir næstu 2-3 ár. Ef ekki verður um hækkun á honum að ræða og ef ráðuneytið krefst niðurskurðar á starfseminni eins og ýjað er að í texta skammtímasamningsins þurfum við að endurskoða tilverugrundvöll samtakanna og skrifstofunnar.
Fyrir liggur beiðni um fund við ráðherra en ekki vitað hvenær hann verður.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Fundargerð ritaði: Hörður


