Skólanefndarfundur: 10.11.2026 
Staður: Kleppsmýrarvegi 8

Fundarmenn:

Hrefna Friðriksdóttir, Gísli Björn Heimisson, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir

Fundargerð:

Fundur settur.

  1. Elli fór yfir gang mála í sumar sem leið. Flest gekk vonum framar frá sjónarhóli skólastýra.
  2. Helst kvartað yfir matnum. Skólastýri taka að vissu leyti undir það að maturinn var einhæfur. Sigurður frá UMFÍ óskar eftir matseðli frá okkur. Aðeins kvartað undan loftgæðum.
  3. Almenn ánægja með námskeiðin. Aðeins skiptar skoðanir með áherslur í Leikritun.
  4. Leiksmiðja þar sem höfundar unnu tvo tíma með leikurum úr hinun bekkjunum lukkaðist vel.
  5. Skólinn næsta ár verður 19. – 27. júní. Hörður staðfestir tímasetningu við Sigurð.
  6. Rætt um námskrá 2027
    1. Borðleggjandi að Leiklist II verði í boði. Ágústa fyrsti kostur, Gríma annar.
    2. Leikstjórnarnámskeið komið á tíma. Leikstjjórn I var síðast 2021. Tölum fyrst við Rúnar Guðbrandsson. Rætt um valkost 2 og Agnes Wild kom upp ásamt Sigurði Líndal og Grétu Kristínu Ómarsdóttur.
      Rúnar hefur staðfest símlega. Hörður óskar eftir skriflegri staðfestingu.
    3. Sérnámskeið. Minnst á Ásdísi Rós Alexandersdóttur og Eyvind Karlsson.
    4. Framhald á Complete Vocal. Elli heyrir í Þórhildi.
  7. 30 ára afmæli Leiklistarskóla BÍL Samþykkt á síðasta aðalfundi að halda málþing um skólann. Hugmynd að slá þessu saman og jafnvel halda stuttverkahátíð a la lokadag í tengslum við málþingið og ljúka með fögnuði.
  8. Hörður athugar hvort Ásta Hafþórsdóttir getur komið á fund. Ræða annarsvegar hugmyndir um förðunarnámskeið á næsta ári og einnig hvaða hugmyndir hún hefur um hvernig hægt væri að koma við förðun og gervagerð í skólanum.
  9. Næsti fundur eftir áramót.

Fundargerð ritaði Hörður