Skólanefndarfundur: 31.03.2026
Staður: Kleppsmýrarvegur 8
Fundarmenn:
Hrefna Friðriksdóttir, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir
Fundargerð:
Skólanefndarfundur 31.03.2026
Mættir: Guðfinna, Hrefna, Elli, Jónheiður og Hörður
- 71 sóttu um 54 pláss á fjórum námskeiðum.
- Farið var yfir öll námskeið og var tími umsókna látinn ráða hvar fólk lenti í röðinni sama hvort um var að ræða aðal eða varaval.
- Skráð var niður í hvaða röð fólk var tekið inn á hvaða námskeið og hverjir eru á biðlista á hvaða námskeiði. Sumir eru á biðlista á bæði aðal- og varanámskeiði.
- Hörður mun senda út pósta á morgun til þeirra sem eru komnir með pláss á námskeiði og þeirra sem eru á biðlista.
- Rætt um kennarafund í lok maí. Hörður mun hafa samband og senda kennurum nemendalista og kanna tíma á fundi.
- Hörður talar um að fá Ástu á fund í haust og kanna möguleika á lengra námskeiði. Guðfinna talar um að Ásta sé að fara að vinna erlendis.
- Rætt aðeins um næsta ár
- Ellir talar um að kannski væri gott að skólinn ætti fataslár og munu Elli og Jónheiður skoða það.
- Aðeins minnst á 30 ára afmæli á næsta ári en ræðum það betur seinna.
Fundargerð ritaði Jónheiður


