Skólanefndarfundur: 08.12.2025 
Staður: Zoom

Fundarmenn:

Hrefna Friðriksdóttir, Gísli Björn Heimisson, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir

Fundargerð:

  1. Kennarar og námskeið í BÍL skólanum 2026

Elli fór yfir að Gríma er spennt og til í að koma og vera með Improv námskeið. Þórhildur hefur samþykkt að koma og vera með Complete vocal námskeið með fyrirvara um laun. Kalli og Ágústa eru til í að koma aftur. Kalli með sérnámskeið í leikritun og Ágústa með Leiklist I. Við ræddum við Kalla um hugmyndir að námskeiði og hann ætlar að setja saman lýsingu.

Ef við miðum við þessa fjölda

16 – Improv – Leiklist I og II eða Improv I og II eða umtalsverð reynsla

16 – Leiklist I – engar forkröfur

8 – Complete vocal – engar forkröfur

12 – Leikritun sérnámskeið – Leikritun I og II gengur fyrir, umtalsverð reynsla

Þá erum við með 52 nemendur (gæti hækkað eitthvað)

Hrefna spyr hvort við höfum fengið einhver tilmæli frá staðarhöldurum að dreifa ekki of mikið úr okkur en Jónheiður svarar því að Sigurður virðist mjög rólegur yfir því og við höfum beðið hann að láta okkur vita ef hann þarf að taka meira fyrir gistingu vegna þess en við höfum líka reynt að dreifa ekki úr okkur í öll rými td. var efsta hæðin í Ólafshúsi ekkert nýtt í fyrra.

  1. Staður og tími á skólanum

Hörður mun hafa samband við Sigurð til að fá staðfestingu á tímasetningu á skólanum.

  1. Laun og kostnaðarmódel BÍL skólans

Sem innlegg inn í þessa umræðu þá var aukning á einstaklingsherbergjum úr 21% í 42% 

Hrefna spyr hvort það sé talað um það í bæklingnum eða á síðunni, en það er reitur í umsókninni og þar er fyrirvari um að mögulega sé ekki hægt að verða við öllum óskum. Hrefna spyr hvort það væri hægt að miða við 35% nemenda í einstaklings herbergjum.

Hörður mun hafa samband við kennara þegar hann er búin að hafa samband við Sigurð og fá tölu um kostnað við gistingu og mat og við munum reyna að hækka ekki skólagjöldin og athuga hvort hægt sé að hífa upp laun kennara meira en hefur verið.

  1. Förðunarnámskeið

Hörður segir að Ásta Hafþórs sé til í förðunarnámskeið 24.-25. janúar og hann er búin að kanna og fá svar frá Reykjavík makeup school og kostnaður þar er rúmlega 300.000 kr fyrir tvo daga, og hann á von á að heyra frá Makeup Studio sem hann kannaði líka, fljótlega. Ásta ætlar að heyra í Herði á morgun og þá fær hann á hreint launakröfur og hámarksfjölda.

Hörður lætur okkur vita á facebook þegar hann hefur fengið meiri upplýsingar. 

Námskeiðið gæti kostað 50.000-60.000 kr. 

Rætt um félögin gangi fyrir en við skoðum nánari útfærslu á því síðar. 

Fundargerð ritaði Jónheiður