„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“

Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA.

Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann upplifir sig á skjön við nútímann og nærir biturð sína gagnvart farsælasta listamanni Íslands ásamt því að vera heltekinn af eigin líkamsvexti.

Við fylgjumst með persónunni elta galsakenndar fantasíur sínar og ranghugmyndir í leit að frama þar sem mörkin milli raunveruleika og óra mást út. Í verkinu endurspeglast nútímaleg þörf eftir ævintýrum og breytingum í samfélagi sem stundum virðist vera komið í hugmyndafræðilegt öngstræti.

Björn Leó Brynjarsson útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ 2011 og voru þeir Kolbeinn Arnbjörnsson og Pétur Ármannsson samferða í LHÍ.

TAKATAKA er samstarfhópur sviðslistamanna sem leitast að draga áhorfendur með sér í alltumlykjandi sviðsupplifun, þar sem leikur með texta og frásögn blandast tilraunum með klassískan leik, nærveru líkamans og hreyfingu.

Verkið var frumsýnt á RDF/Lókal í ágúst 2015.

„Einn af hápunktum hinnar frábæru Lókal/RDF hátíðar var að mínu mati, Frami; nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson. Spennandi texti og uppsetningin leikstjóra og öllum aðstandendum til sóma.“ – Stefán Jónsson, leikstjóri, leikstjóri og fagstjóri leiklistardeildar LHÍ.

AUKASÝNINGAR Í JANÚAR:
15. janúar kl. 20:00
22. janúar kl. 20:00

Kaupa miða hér.

Aðstandendur

Handrit og leikstjórn
Björn Leó Brynjarsson

Leikur
Kolbeinn Arnbjörsson

Dramatúrg
Pétur Ármannsson

Kóreógrafía
Brogan Davison

Vídeó og grafík
Daníel Þorsteinsson
Atli Bollason

Markaðsmál
Katla Rut Pétursdóttir
Jenný Lára Arnórsdóttir