Gestur – Síðasta máltíðin eftir Gaut G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson er ný íslensk “hinsegin” óperetta/leikverk með söngvum. Verkið fjallar um þá Lauga og Óliver sem eru samkynhneigð hjón í Grafarholtinu og nýja nágrannann þeirra, atvinnuflugmanninn og sjarmatröllið Gest. Laugi er heimavinnandi en Óli vinnur í banka og þeir una nokkuð glaðir við sitt þar til gesturinn Gestur setur líf þeirra úr skorðum. Smávægilegur misskilningur kallar fram afbrýði og hefndarhug sem kemur af stað bráðfyndinni atburðarrás með óvæntum endi.

Tónlistin er ákaflega vönduð og áheyrileg og spannar fjölmargar stílgerðir vestrænnar tónlistar; eina stundina er hún létt og fjörug í ætt við Mozart og aðra hádramatísk og rómantísk. En alltaf er léttur undirtónn. Leiktextinn er farsakenndur og meinfyndinn og hann ásamt tónlistinni myndar þetta stóskemmtilega verk.
 
Verkið verður frumsýnt í Iðnó þann 22. október n.k.

 Aðstandendur sýningarinnar

    * Þröstur Guðbjartsson leikstjóri
    * Gautur G. Gunnlaugsson höfundur/hlutverk Lauga
    * Gunnar Kristmannsson höfundur/hlutverk Ólivers
    * Hrólfur Sæmundsson hlutverk Gests
    * Raúl Jiménez píanó