Verðlaunaverkið Elsku barn, eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, snýr aftur á fjalir Nýja sviðsins fimmtudaginn 24. nóvember nk. Elsku barn er nístandi saga móður sem sökuð er um að myrða börnin sín tvö. Hér er á ferðinni áleitið verk sem veltir upp ýmsum heimspekilegum spurningum um eðli sannleikans, réttlæti og lygi, hvernig lifa má við ófyrirgefanlegan glæp og óbærilegan sársauka. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson sem áður hefur tekist á við ögrandi verk s.s. Vestrið eina, Maríubjölluna, Þú ert hér og Góðir Íslendingar.

Sex leikarar taka þátt í sýningunni þau Unnur Ösp Stefánsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Benedikt Erlingsson, Hallgrímur Ólafsson, Nína Dögg Filippusdóttir og Valur Freyr Gíslason. Elsku barn var einn helsti sigurvegari Grímunnar síðastliðið vor, hlaut alls sjö tilnefningar meðal annars sem sýning ársins og Unnur Ösp Stefánsdóttir var valin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á móðurinni ungu.

Sagan. Ung móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er byggt á opinskáum viðtölum við alla aðila málsins. Engu hefur verið bætt við og allt er orðrétt haft eftir. Hvert er eðli sannleikans? Veldur í raun hver á heldur? Er hægt að lifa með ófyrirgefanlegum glæp? Er hægt að hreinsa manneskju af glæp sem ekki var framinn? Hvert er gjaldið fyrir réttlæti?

Verkið. Elsku Barn er nístandi saga sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um margvíslega birtingar mynd lyginnar. Dennis Kelly (1970) er í hópi fremstu leikskálda Breta um þessar mundir og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta leikskáld Evrópu. Frá árinu 2003 hefur hann skrifað alls átta leikrit, m.a. Love and Money sem var tilnefnt til Olivier verðlaunanna og Munaðarlaus sem sýnt var hér á landi síðasta vetur við góðar undirtektir.

{mos_fb_discuss:2}