Leikfélag Hveragerðis frumsýnir  laugardaginn 7. Mars kl 20.00 leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.

Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi,  sem allar vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim á mismunandi tímum  og vita ekki hver af annari.  Á heimilinu er einnig heimilishjálpin Dísa. Hlutirnir fara svo að flækjast þegar Róbert vinur Jónatans kemur í heimsókn og fær að búa hjá honum nokkra daga.

Leikritið er ærslafullur farsi þar sem einn kemur þá annar fer.  Nokkur þekkt sönglög  eru flutt í leikritinu eins og t.d. Ég fell bara fyrir flugfreyjum , Rassmus, I wont to brake free, Fly me to the moon og fleiri. Enn eru nokkrir miðar lausir á frumsýningu.

Frumsýning laugardaginn 7. mars

2. sýning sunnudaginn 8. mars

3. sýning föstudaginn 13. mars

4. sýning laugardaginn 14. mars

Allar sýningar byrja kl. 20.00

 

Sýnt er í Leikhúsinu, Austurmörk 23. Miðapantanir í síma 863 8522.

Miðaverð 2.500 kr. og 2.000 kr. fyrir hópa 10 eða fleiri.