Leikfélag Hveragerðis æfir nú upp leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið var frumsýnt í vor en sýningar hættu skyndilega fyrir fullu húsi þegar einn leikarinn sleit hásin á miðri sýningu. Sýningar verða helgarnar 23. og 24. október og svo 30. og 31. október klukkan 20.00.
Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.
Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem allar vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim á mismunandi tímum og vita ekki hver af annari. Á heimilinu er einnig heimilishjálpin Dísa. Hlutirnir fara svo að flækjast þegar Róbert vinur Jónatans kemur í heimsókn og fær að búa hjá honum nokkra daga. Leikritið er ærslafullur farsi þar sem einn kemur þá annar fer. Nokkur þekkt sönglög eru flutt í leikritinu eins og t.d. Ég fell bara fyrir flugfreyjum, Rassmus, Fly me to the moon, I want to break free og fleiri.
Leikarar eru Davíð Michelsen, Hjörtur Benediktsson, Hrafnhildur Faulk, Irma Lín Geirsdóttir, Hrefna Ósk Jónsdóttir og Elín Hrönn Jónsdóttir.
Leikritið vakti mikla lukku og kátínu og nú ætti enginn að láta þessar sýningar fram hjá sér fara. Myndir og fréttir verða svo á facebóksíðu Leikfélags Hveragerðis.
Miðapantanir eru í síma 8638522. Miðaverð er 2500 krónur en 2000 fyrir hópa 10 eða fleiri.