Á frábærum föstudegi sem er um leið Bóndadagur, berast stórtíðindi úr herbúðum Kómedíuleikhússins. Þrír Bílddælingar hafa tekið sig saman og gert splunkunýja leikgerð úr ævintýri Bílddælingsins Guðmundar Thorsteinssonar eða Muggs. Hið Bílddælska tríó skipa þeir Þröstur Leó Gunnarsson sem mun annast leikstjórn, Björn Thoroddsen er höfundur tónlistar og loks Elfar Logi Hannesson sem mun leika. Æfingar eru þegar hafnar og er stefnt á frumsýningu um miðjan mars í Þjóðleikhúsinu.

Eins og unnendum Kómedíu er kunnugt, er listamaðurinn Muggur í miklu uppáhaldi hjá leikhúsinu. Fyrsti stór einleikur Kómedíuleikhússins var einmitt Muggur er fjallaði um æfi þessa fjölhæfa listamanns. Árið 2006 frumsýndi leikhúsið svo leikritið Dimmalimm sem er þriðja mest sýnda leikrit þess og loks árið 2012 var það ævintýraleikurinn Búkolla úr ævintýraheimi Muggs. Síðastnefndi leikurinn er byggður á þeim þjóðsögum og ævintýrum sem Muggur myndskreytti. Þá má geta þess að Búkolla er í 5 sæti yfir mest sýndu leiksýningar leikhússins. Þá má nefna að Kómedíuleikhúsið gaf út barnabókina Muggur saga af strák árið 2017 en það er söguleg skálduð barnasaga um æskuár Muggs á Bíldudal.

Kómedíleikhúsið er ákaflega spennt fyrir að færa Dimmalimm, þetta vinsælasta ævintýri þjóðarinnar á svið á nýjan leik og það í splunkunýrri leikgerð.