Þetta er í fyrsta skipti sem listamaður hefur aðsetur í klefanum og þótti henni einkar ánægjulegt að dveljast á Rifi. Hún sótti meðal annars prjónanámskeið og gerði sitt besta til að læra íslensku með góðri hjálp Kötu í Rifssaumi.
Sýning Mirte hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í rúmar þrátíu mínútur. Eins og fyrri daginn eru það frjáls framlög sem gilda sem miðaverð á sýninguna og eru heimamenn hvattir til að bregða undir sig betri fætinum og taka þátt í þessum skemmtilega viðburði.