Setja inn færslu / Smella/Ýta á myndir til að stækka
Árin án Árna
Ég hef kynnst mikið af fólki í gegnum leiklistarskólan, og hafa mörg þeirra eignast kæran stað í hjarta mínu. Fyrst þegar ég leit hann Árna Pétur frá Langanesi augum hugsaði ég að hér væri maður sem gæti komist upp með bankarán notandi ekkert nema sinn náttúrlega sjarma og manngæsku til að losna undan hvers kyns krísu sem kæmi upp í aðstæðum jafn alvarlegum og bankaráni. Öryggiskerfi sálar minnar var gert afvirkt af hans starandi augnaráði og rödd hans hótaði mínum innri gísl blítt og rólega niður í jörðina. Gegnum reynslu hans og visku var bankahvelfing hjarta míns opnuð og öll innri verðmæti gerð frjáls. Lipurleiki hans og snerpa gerðu flóttatilraun hæfileika mína úr líkama mínum fullkomnlega heppnaða. Mín vegna má hann halda áfram glæpahrinu sinni um ókomna tíð.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Höfuðlag sem kallar heim
Eftir svona langa dvöl á reykjum er heimþráin farin að kalla hátt. En ég finn huggun og hugrekki til lengri dvalar með því að horfa á höfuðlagið hjá honum Símon frá Grenivík. Orð eru erfið að finna, til að lýsa þeim tilfinningum af öryggi og umhyggju sem ég fyllist af þegar ég sé þetta fullkomna höfuðlag. Góð myndlíking væri kannski að vera komin aftur í móðurkviðin umvafinn hlýju og frumvökvum sem fylla hverja lekandi holu sem efi og kvíði myndi annars flæða úr. Þegar hann setur upp hatt þá hugsa ég aðeins um gulltindinn á forna pýramídanum hans Keops. Mikilfengni og kórónandi fullkomnum sem á sér engan líkan á jarðríki. Bara ef ég gæti tekið mót af því þó ég viti að það væri aðeins aum eftirlíking af fullkomna frumeintakinu.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Blóm og Busar
Síðustu daga í leiklistinni hef ég átt erfitt með svefn og vaknað um næturlag. Ekkert merkilegt svosem við næturgöngur mínar nema eitt kvöldið leit ég út um gluggan og sá þar veru út á túni. Í fyrstu sá ég ekki alveg hvað augun mínum barst en fljót vitjaði mér fyrir þetta var hún Eyrún frá Melum að borða blómin á túninu. Hún var hömlulaus í áti sínu og gerði ekki upp á milli gras og fífla, ég stóð sem dáleiddur eins og maður sem horfir á gamalt virðulegt hús vera rifið. Mér fannst eins og ég hefði átt að segja eitthvað eða stöðva hana. En ég ákvað að láta það liggja. Sumir hlutir tilheyra næturhúminu og aðeins því. Ég vakna núna hverja nótt og stari á blómátið vökudraumsins fangi.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Nýjar hæðir í Leiklist
Í leiklist geta hlutverk stundum ráðist af líkamslögun manna og útliti þeirra og hér í leiklistarskólanum eru breiðir og mjóir skeggjaðir og skegglausir og háir og láir.
Einn einstaklingur stendur samt ofar öðrum í hæð sinni og finn ég sjálfan mig lítandi á hann með aðdáun og öfund sem aðeins alvöru mikilfengni getur vakið í manni. En það er hann Bjarki frá Akureyri sem trónir ofar öðrum með tindleika sem aðeins má líkja við risann í Rhodes. Sterk undirstaða sem rís upp til að vekja öfund í fjöllunum og skýjunum. Á nóttunni dreymir mig að ég sé rétt svo á stærð við flugu og ég stend við rætur Bjarkatinds, ég klíf og klíf að reyna ná toppnum en áður en ég er kominn alla leið vakna ég niðurlútur og vonsvikinn.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Bestu og Verstu klósettin í Reykjaskóla
Þar sem ég er mikill unandi þess að sitja á góðu Gustavsbergi og íhuga gjörðir dags að koma og dags að líða hef ég haft það yndislega tækifæri til að tilla mínum fagra rass á hin mörgu klósett sem þessi skóli inniheldur.
Karlaklósett, efri hæð Grund. 6/10
Ekki nægt næði, önnur hurðin stíf. Seturnar stundum kaldar, stundum óþægilega rakar.
Karlaklósett, skiptiklefi í Sundlaugarhúsinu. 8/10
Ró og næði á réttum tíma dags. Gott og traust umhverfi, þó tími og raki og hiti hafi haft sín augljósu áhrif stendur það sterkt og traust.
Karlaklósett, Ólafshús. 9/10
Fyrir aftan tvær læsanlegar hurðir, þægileg seta og oftast laust.
Nyrðra Kvennaklósett, Ólafshús. 1/10
Maður þarf að sitja á ská. Meira þarf ekki að segja.
Karlaklósett, Bjarnaborg. 4/10
Óvelkomandi andrúmsloft og of mikið pláss fyrir fleiri.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Heimsmeistaramót!
Í gær var hvorki meira né minna en heimsmeistaramót í Bandalagsskólanum, HM í Gúrku 2023. Magnþóra stjórnaði mótinu og Baddi var einstaklega skemmtilegur kynnir mótsins. Keppt var á sex borðum í Bjarnaborg þar sem einn sigraði á hverju borði. Þá var tekin pása og mótið klárað á einu borði í setustofunni á Grund. Gríðarleg stemning var meðal bæði keppenda og áhorfenda. Hrefna sigraði mótið eftir æsispennandi úrslitaeinvígi við Svavar Mána, bikarinn fór í Borgarfjörðinn í ár.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
„En brosað samt út í salinn“
Ýmislegt getur gerst í leikhúsinu og það sama má segja um Bandalagsskólann. Þessari frábæru mynd náði hirðljósmyndari okkar akkúrat á því augnabliki þegar óvæntir hlutir höfðu gerst í busununni og böðlar upplifðu örvæntingu um stund. En allt fór vel að lokum og mikið erum við rík að hafa fengið þessa frábæru nýju nemendur og kennara í skólann okkar. Sjá má lengri myndaseríu á facebooksíðunni okkar, Leiklistarskóli BÍL.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Af krullum og Örlögum
Hár manna er mismunandi og hrukkur og hólar lífsins gefa kollvikunum á hverjum sinn einstaka blæ. Í leiklistarskólanum eru margir litir og form sem prýða hið heilaga höfuðhof sem við berum öll á milli herða.
Einn kollur stingur sig samt út hvar sem hann fyrirfinnst. Liðuðu krullurnar á Eyþóri frá Akureyri. Mér hafði aldrei órað að ég skyldi verða dáleiddur af einhverju jafn dauðu og hári kollagen og frumur sem löngu eru liðnar glæða í sál minni líf og kjarnaeld sem ég hélt að væru aðeins daufar glóðir í sálu minni. Ég finn sjálfan minn safnandi litlum lengjum sem falla blíðlega til jarðar af hans fullkomna kollviki. Ég er með gínu upp á herbergi og ég veit að það er aðeins tímaspurnsmál þangað til ég hef hann alveg fyrir mig.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Fögur augu og Fatlar
Hér í leiklistarskólanum eru margir mismunandi augnlitir og er fjölbreytileikinn yndislegur.
Ég setti mér það markmið að kanna þessar litalendur og sjá hversu vel við vorum í stakkinn búin ef kæmi til að búa til litakort út frá okkar augum. Hinsvegar þegar ég fór að kanna hvernig litirnir lægju, lenti ég í vandræðum. Augun mín runnu á bládjúpa hyli sem tilheyrðu einum Örn Smára frá Akureyri. Ég var fallinn fyrir þessum augum frá augnablikinu sem ég læsti ásjónum mínum á þau. Ég finn í tíma að ég stari og stari og fæ ekki nóg. ég hlusta ekki lengur á kennarann. Heldur stari bara. Augun mín þorna við störu mína og ég gríp í vatnsflöskuna til að væta þau bara svo ég geti horft aðeins lengur í fagurbláu augun hans Örns.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Raunir leikstjórans
Að greina eða greina ekki, þarna er efinn. Hvernig á miðaldra hvít forréttindakona að geta sett sig í spor 300 ára gamallar tröllskessu sem er ný búin að tapa heimili sínu, jú við gerum baksögu, t.d. eitthvað í líkingu við þetta:
Fóa er um 300 ára gömul hún á engin systkini og ekki foreldra á lífi og lifir frekar einföldu lífi. Foreldrar hennar urðu bæði að steini þegar þau fóru ógætilega í sumarnóttinni á Íslandi í rómantískri gönguferð þegar Fóa var lítil tröllastúlka. Dýrin hjálpuðu henni að lifa af og þess vegna á hún í nánu og góðu sambandi við dýrin í kring um sig og hefur lært að allt verður auðveldara ef maður hjálpast bara að…og allt í einu liggur þetta allt ljóst fyrir manni…
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Spáð fyrir um framvinduna
Höfundar eiga góða daga og slæma daga, suma dagana rennur textinn sem óbeislað fljót á blaðið, skjáinn eða hvað eina sem höfundurinn notar en stundum er hægðatregðu hugans að gera útaf við mann.
Sögur eru lifandi og fara ekki alltaf í þá átt sem við viljum og ekki heldur í því magni sem við ætlumst oft til, ég ætlaði til dæmis að gera krúttlegt ævintýr í undirdjúpunum og mér þótti einsýnt að þetta yrðu kannski 10 síður með forsíðu, baksíðu og þó nokkurri slagsíðu, ekkert mál, tvö börn fara í undirdjúpin lenda í smá ves, verður hent í hyldýpi svartnættis en komast upp að lokum…. núna 12 síðum síðar var mér loks að takast að láta henda þeim fram af.
En svo gera aðrir þetta bara svolítið öðruvísi, sjá mynd.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Skipulag og skemmtilegir gestir
Það er alltaf fjör inni á kennarastofu. Við höfum fengið marga góða gesti og erindi af ýmsu tagi frá kröfuhörðum en þakklátum nemendum skólans. Tíminn milli funda og fastra viðburða er nýttur í skipulagninu og kassaföndur á góssi skólans. Dagskráin þéttist þó skólinn sé rétt að byrja, undirbúningur á alls konar í fullum gangi!
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Skólastýri flagga og föndra
Nú er dagur tvö í Bandalagsskólanum hjá nýjum skólastýrum og höfum við haft nóg að gera, tímin flýgur hratt á gervigreindaröld! Í morgun var bandalagsfáninn dregin að hún og við fórum í fyrstu morgunleikfimina hjá Árna Pétri. Hún var mátulega róleg til að keyra af stað inn í daginn, ekkert bootcamp ala Rúnar Guðbrandsson. Árni tilkynnti okkur að menn eins og hann sem hafa séð allt og alla í heiminum horfa bara upp í skýin því það er það eina sem hann á eftir að skoða. Svo slógum við grasið með hlátri, slætti lokið í bili.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Fyrirsætur
Í gær mundaði ég myndavélina til að fanga fegurð þeirra mörgu aðstaðenda sem sækja hér námskeið og gleði. Þraut mín reyndist samt þyngri en ég áætlaði í fyrstu, það sem byrjaði sem öskóp saklaus tilraun til að fanga myndir af fjölbreyttu fánuni sem beitir á gresjum leiklistarinnar endaði sem óróleg þráhyggja er hugur minn og myndavél festist við eitt og aðeins eitt viðfangsefni. Hinn þokkafulli Þorkell frá Melum, fyrst voru þær nokkrar en því fleiri myndir sem ég tók því meira festist ég í þessum vítahring. 10..100…svo voru þær orðnar meira en þúsund, kortið mitt fylltist ég tæmdi það fljótt en fann að löngunin hvarf ekki ég fór inn í herbergið hans meðan hann svaf og myndaði og myndaði þangað til batteríið kláraðist. Mér var sama hverjar afleiðingar voru…
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:
Skólinn settur
Leiklistarskóli Bandalagsins var settur í morgun með pompi og prakt af nýjum skólastýrum, þeim Jónheiði og Ella. Strax í kjölfarið fór hópurinn í mini-skrúðgöngu í tilefni af Þjóðhátíðardeginum en síðan fór hver í sitt rými til að hefja vinnuna, leikarar, leikstjórar og höfundar. Framundan er annasöm en án vafa skemmtilega vika.
Sett inn: 26.10.2026 – 08:10:10:

















