Category: Gagnrýnandinn

Áhugaleikhúsin eru alvöru fjársjóður

Hildur Eir Bolladóttir skrifar um Átta konur hjá Leikfélagi Hörgdæla Á Melum í Hörgárdal er verið að sýna glæpa gamanleikinn Átta konur. Við vinkonurnar skelltum okkur í leikhús í gær og áttum þar upplífgandi kvöldstund. Átta konur fjallar um fagra eiginkonu, tvær óstýrlátar dætur, aðþrengda mágkonu, gráðuga tengdamömmu, dularfulla ráðskonu, kynþokkafulla þjónustustúlku og húsbóndann á heimilinu sem liggur sofandi upp í rúmi sínu. Úti hvín vindurinn í þéttofnu myrkrinu,  hundarnir eru hættir að gelta, síminn þagnaður, snúrurnar afklipptar, allt er hljótt þar til drepið er á dyr. Inn í húsinu takast átta konur á um svik og sök í...

Read More

Ævintýrabókin – mikil gleði, gott í hjartað og bráðfyndið.

Júlíus Júlísson skrifar um Ævintýrabókina hjá Leikfélagi Dalvíkurbyggðar Föstudaginn 6. mars, frumsýndi Leikfélag Dalvíkurbyggðar  í Ungó Ævintýrabókina eftir Pétur Eggerz. Ingrid Jónsdóttir leikstýrir verkinu og það eru um eða yfir 40 manns sem koma að sýningunni. Eitt kvöldið leggst Dóra litla upp í rúm og ætlar að lesa uppáhaldsbókina sína. Hún byrjar að lesa, en þá gerast undur og stórmerki. Úlfurinn í Rauðhettu lætur sig hverfa úr sínu ævintýri vegna þess að hann er orðinn leiður á því að lenda aftur og aftur í því að vera skorinn á magann og fylltur af steinum. Hann flýr yfir í önnur...

Read More

Hlátur, gleði og tempó

Pétur Guðjónsson fjallar um sýningu Freyvangsleikhússins á Tom, Dick og Harry Tom, Dick og Harry segir frá hjónunum Tom og Lindu sem bíða heimsóknar frá ættleiðingarstofu – og því þarf allt að vera fullkomið. Þá mæta bræður Toms og úr verður óstöðvandi flækja. Klassískur farsi þar sem góðar fyrirætlanir breytast í algjört stjórnleysi. Það voru engar hraðatakmarkanir í Freyvangi á frumsýningu síðastliðið föstudagskvöld. Strax í upphafi keyrir leikritið af stað af miklum krafti og flækjan er byggð upp af skýrleika og öryggi. Uppbygging óreiðunnar var greinileg og áhorfandinn missti aldrei þráðinn. Bernharð Arnarson ber sýninguna uppi. Hann leikur af...

Read More

Heillandi og hugljúf hugleiðing um tímann

Júlíus Júlíusson fjallar um sýningu leikfélags Dalvíkur á Fram og aftur Leikfélag Dalvíkurbyggðar fær hrós í hástert fyrir metnaðarfulla og vandaða uppfærslu á verkinu Fram og aftur eftir bandaríska leikskáldið Sean Grennan. Leikritið, sem nú er sýnt í fyrsta sinn á Íslandi í íslenskri þýðingu og leikstjórn Dominique Gyðu Sigrúnardóttur, er bæði heillandi og hugljúf hugleiðing um tímann, ákvarðanir sem móta líf okkar, og þá sem við deilum þeim með. Sögusviðið er einfalt en áhrifaríkt: lítill bar á Dalvík árið 1986, þar sem ungi barþjónninn fær óvænta heimsókn frá eldri manni sem gerir honum undarlegt tilboð – peninga gegn...

Read More

,,Land míns föður“ í Freyvangsleikhúsinu-umfjöllun

Á síðasta degi febrúar, eða þann 28. frumsýndi, Freyvangsleikhúsið söngleikinn, Land míns föður, eftir Kjartan Ragnarsson við fallega sveiflutónlist eftir, Atla Heimi Sveinsson, og var ég undirritaður þeirrar ánægju aðnjótandi að vera á staðnum. Í verkinu er fjallað um hernámsárin á Íslandi, en sá tími var afar örlagaríkur í lífi þjóðarinnar og hafði áhrif og ýmsar afleiðingar fyrir margan einstaklinginn.  Rauði þráðurinn í gegnum verkið er ungt par, Ársæll, eða, Sæli, sem er ungur glímukappi, sem Jóhannes Már Pétursson leikur, og kærustuna hans, Báru, sem Járnbrá Karítas Guðmundsdóttir leikur, og eru þau óttalega krúttaraleg, en þau trúlofast í upphafi...

Read More

Ég var að koma af skemmtilegri leiksýningu!

Jólasveinar einn og …… fjórtán? Hrekkjalómarnir okkar ljúfu, synir Grýlu og Leppalúða, hafa löngum verið innblástur ýmsum höfundum, bæði til sagna, ljóða og leikrits.  Um þessar mundir sýnir Freyvangsleikhúsið barnasýninguna 14. jólasveinninn, sem er leikgerð unnin upp úr samnefndri bók eftir Ásgeir Ólafsson Lie, en bókin kom út fyrir sex árum síðan. Það er alltaf fagnaðarefni þegar ný verk rata á fjalirnar og hefur Freyvangsleikhúsið verið ákaflega ötult í þeirri frumsköpun, sem og að leyfa félagsfólki að spreyta sig á listrænni stjórn sem einnig á við hér, en formaðurinn Jóhanna Ingólfsdóttir leikstýrir og  lagar söguna að leikhúsinu. Í stuttu...

Read More

Sannkallað leikhúsferðalag til plánetunnar Limbó

Ferðin til Limbó, í leikstjórn Arnar Alexanderssonar og Sigrúnar Tryggvadóttur, er stórskemmtileg og lágstemmd skemmtun fyrir yngstu kynslóðina. Hér er fyrsta leikritið eftir íslenska konu sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu endurvakið og var það gert með mikilli grandgæfni, gleði og húmor. Texti verksins er skemmtilegur og lúmskt fyndinn, líka fyrir fullorðna og greinilega búið að aðlaga hann að nútímanum. Systkinin Maggi og Malla mús eru viðkunnanlegar persónur sem leikarar leika vel og með miklum tilþrifum. Orkustig leikaranna er hátt og kemistrían þeirra á milli er frábær. Móðursýki Möllu og hetjuskapur Magga blandast frábærlega saman og býr til mikla...

Read More

Húrra fyrir Freyvangsleikhúsinu!

Freyvangsleikhúsið hefur sýnt leikritið ,Gaukshreiðrið síðan 16. febrúar og hefur aðsókn verið góð að sögn. Ég undirritaður brá mér á sýningu í gærkvöldi 8. mars og verð að segja að ég varð hrifinn, stórhrifinn. Verkið er samið upp úr bók eftir Ken Kensey og Dale Wasserman gerði leikgerð upp úr bókinni, en Karl Ágúst Úlfsson þýddi þessa leikgerð. En ,,Gaukshreiðrið“ var fyrst sýnt hér á landi á, Húsavík árið 1992 og þá í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur og María Sigurðardóttir leikstýrði. ,,Gaukshreiðrið“ gerist á geðveikrahæli, en fjallar í raun ef til vill ekki um slíka stofnun, heldur er þetta dæmisaga úr samfélagi og viðbrögðum þess við fólki sem ekki vill eða er tilbúið...

Read More

Sjúklega skemmtilegt sex og upprisan góð

Júlíus Júlíusson skrifar um sýningu Leikfélags Dalvíkur á Sex í sama rúmi  Leikfélag Dalvíkur varð 80 ára í janúar s.l. og frumsýndi föstudaginn 23. febrúar 2024 leikritið Sex í sama rúmi eða Move over Mrs. Markman eftir Ray Cooney og John Chapman. Verkið var fyrst frumflutt á Íslandi af Leikfélagi Reykjavíkur árið 1985 í þýðingu Karls Guðmundssonar.  Ég var svo heppinn að sjá generalprufuna í Ungó fimmtudagskvöldið 22. febrúar. Ég óska L.D. til hamingju með afmælið því í 80 ár hafa félagar glatt leikhúsgesti ómælt og gefið hundruðum einstaklinga færi á að skapa og finna sjálfa sig í listinni....

Read More

Bangsimon og Gríslingur í jólasveinaleit

Freyvangsleikhúsið Höfundur og leiksstjóri: Jóhanna Ingólfsdóttir Höfundur tónlistar: Eirikur Bóasson Freyvangsleikhúsið sýnir um þessar mundir barnajólaleikritið Bangsimon og Gríslingur í jólasveinaleit. Leikritið er samið af heimakonunni Jóhönnu Ingólfsdóttur en hún tekur hinar þekktu persónur A.A.Milne og blandar þeim saman við íslenskar þjóðsagnaverur. Leikritið fjallar um Bangsimon og Grísling sem komnir eru til Íslands til þess að finna íslensku jólasveinana af því að þeir höfðu heyrt að þeir væru 13 talsins. Á leiðinni upp í fjöll rekast þeir á afturgöngu, álf, jólaköttinn og svo loks Stúf og reyna að fá aðstoð þeirra til að finna alla jólasveinana með frekar misjöfnum...

Read More

Rúi og Stúi í Tungunum

Laugardaginn 21. október sl. frumsýndi Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna barna og fjölskylduleikritið RÚI og STÚI eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðarsonar. Þetta er öflug fjölskyldusýning sem höfðar til allra aldurshópa og heldur athygli allan tímann, sem er galdur barnasýninga! Ég var mættur á frumsýninguna. Það er alltaf sérstök stemning á frumsýningum. Spenna og eftirvænting í loftinu og áhorfendahópurinn oftar en ekki tengdur sýningarhópnum meira en aðrir áhorfendahópar. Þetta þýddi að áhorfendahópurinn var verulega blandaður öllum aldurshópum. Um leið og sýningin hófst var athyglin vakin. Sögusviðið er lítið samfélag með ótrúlega skemmtilegum einstaklingum sem...

Read More

Bras í bústað – Umfjöllun um Stelpuhelgi

Undirrituð brá sér norður um síðustu helgi, nánar til tekið á Mela í Hörgársveit en þar sýnir Leikfélag Hörgdæla leikritið Stelpuhelgi um þessar mundir. Höfundur verksins er Karen Schaeffer og þýðandi Hörður Sigurðarson. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir þessum skemmtilega farsa sem nú er sýndur í fyrsta sinn á Íslandi. Verkið fjallar um fjórar konur sem fara saman í sumarbústað til þess að eiga góða helgi saman, drekka vín og njóta lífsins. Fljótlega koma í ljós alls kyns flækjur sem verða til þess að plönin fara út um þúfur og við tekur æsispennandi atburðarás þar sem hver vitleysan rekur aðra....

Read More
Loading

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert