Opin æfing hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss æfir um þessar mundir leikritið Grandaveg 7 í litla leikhúsinu við Sigtún. Um er að ræða leikgerð eftir Kjartan Ragnarsson og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur byggða á skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur. Í tilefni af Menningarmánuðnum október hjá sveitarfélaginu Árborg bauð leikfélagið upp á opna æfingu 7. október. Gestum og gangandi bauðst að kíkja við, fá sér kaffisopa og fylgjast með því hvernig leikæfing fer fram. Skemmtilegt var fyrir leikhópinn að fá áhorfendur í sal á þessu stigi ferlisins. Stóri viðburður félagsins verður svo að sjálfsögðu frumsýning verksins, en stefnt er að frumsýningu við lok...
Read More



