Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Laugardaginn 29. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hagnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Síðasta sýning heppnaðist glimrandi vel og og voru sjö verk sýnd á föstudaginn var. Að þessu sinni verða 8 verk tekin til sýninga og því 15 ný íslensk verk sem félagið býður upp á að þessu sinni. Hið vikulega þessa vikuna […]

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Líkt og undanfarin ár stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6. og 7. bekk) og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára (8. bekk og eldri). Þau hefjast 8. sept. og standa til loka nóvember. Námskeið verða vikulega á þriðjudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp […]

Námskeið í leikritun hjá Karli Ágústi Úlfssyni

Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í leikritun nú í byrjun september í húsnæði sínu að Eyjarslóð 9. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á að spreyta sig við leiktextasmíð, jafnt algerum byrjendum og þeim sem einhverja reynslu hafa. Í gegnum nokkrar æfingar skoðum við grunneiningar leikritsins – upphaf, miðju […]

Nýtt leikár kynnt í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið kynnir leikárið 2015-2016 með glæsilegu blaði sem kom út í dag. Dagskrá vetrarins eru mjög fjölbreytt og er öllu tjaldað til. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og er meiri en nokkru sinni fyrr í sögu íslensks leikhúss. Fjöldi kortagesta hefur margfaldast og hafa þeir aldrei verið fleiri. Úr […]

Hið vikulega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Nú á föstudaginn 21. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega frumsýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Að þessu sinni verða sjö verk tekin til sýningar eftir jafn marga höfunda. Þema vikunnar að þessu sinni var Fíflið – The Fool og munu því öll verkin að þessu sinni fjalla að einhverju leyti um fíflið í einni […]

Ævintýraóperan Baldursbrá í Hörpu

Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson verður frumflutt á sviði í Norðurljósasal í Hörpu laugardaginn 29. ágúst 2015 og er miðasala hafin Hér er um tónleikauppfærslu að ræða. Tónlistin byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Söngvarar eru Fjóla Nikulásardóttir sópran […]

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur leikárið á Hinu Vikulega

Höfundar Leikfélags Hafnarfjarðar sitja nú við að skrifa leikrit fyrir Hið vikulega, en æfingar hefjast á því næstkomandi laugardag, 15. ágúst, kl. 14:00, en þá verður samlestur á nýskrifuðum verkum í anddyri Gaflaraleikhússins. Þeir sem hug hafa á því að taka þátt í hinu vikulega, endilega mætið á samlesturinn. Frumsýning á Hinu vikulega verður föstudaginn […]

Stuttverkasýning í Logalandi

Leikfélagið Sýnir stendur fyrir sýningu nokkurra nýrra íslenkra stuttverka í og við Félagsheimilið Logaland í Reykholtsdal laugardaginn 8. ágúst kl. 17.00. Sýning er líður „ríjúnioni“ Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga en Leikfélagið Sýnir sér um skipulagningu og utanumhald á því. Sýnd verða verk eftir F. Ella Hafliðason, Gísla Björn Heimisson, Ingveldi Láru Þórðardóttur, Ólaf Þórðarson og […]

Tjarnarbíó opnar á ný

Tjarnarbíó opnar aftur í ágúst eftir breytingar á sal og búnaði. Fyrsta sýning haustsins kemur frá Spáni, en það er leikhópurinn Patricia Pardo sem sýnir sirkusverkið Comissura. Verkið er sýnt 6. og 7. ágúst kl. 20:00. Miðasala er hafin, en miðinn kostar 2500 kr. Sirkusverkið Comissura inniheldur nærbuxnalausan loftfimleikamann í rólu, ótrúan slagverksleikara, konu þakta […]

Act alone í sjávarþorpinu Suðureyri

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 5. – 8. ágúst. Boðið verður uppá einstaka dagskrá fyrir alla aldurshópa og rúsínan í pysluendanum er að það er frítt á hátíðina. Já, frítt á alla þá 21 viðburð sem verður í boði á Act alone 2015. Act alone var fyrst haldin árið 2004 á […]

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja óskar eftir hugmyndaríkum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem verður barna- og fjölskyldusýning. Áætlaður æfingatími er frá byrjun september til byrjun nóvember. Leikfélagar eru opnir fyrir öllum hugmyndum að uppsetningu. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar berast á netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 25. ágúst nk.

Sumarlokun

Þjónustumiðstöðin, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn loka vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 4. ágúst. Athugið að Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er líka lokuð. Sólarkveðja, Bandalag íslenskra leikfélaga

Rakarinn í Sevilla í haust

Hin vel þekkta gamanópera Rossinis, Rakarinn í Sevilla, er næsta verkefni Íslensku óperunnar og verður frumsýning þann 17. október næstkomandi í Eldborg í Hörpu. Með titilhlutverkið, hlutverk rakarans Fígaró, fer baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson sem sló rækilega í gegn í Don Carlo hjá Íslensku óperunni síðastliðið haust og var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum […]

Leikfélag Selfoss til Danmerkur

Leikfélag Selfoss er ekki þekkt fyrir metnaðarleysi. Nú skal haldið í víking til Danmerkur en þar mun leikfélagið taka þátt í leiklistarhátíðinni NoBa 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi. NoBa er nýleg og mjög spennandi hátíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í Norður-Evrópu. Sýningin sem Leikfélag Selfoss fer með á hátíðina heitir Kjánar og kynlegir kvistir og er […]

Lilta gula hænan ferðast um landið

Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum um allt land í sumar. Þetta er níunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn leikið sér við Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýnt var í Elliðaárdalnum í Reykjavík […]

Leiklestur úr verkinu Lokaæfing

Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir næsta haust í Tjarnarbíói leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Leikarar munu leiklesa upp úr verkinu föstudaginn 19. júní kl. 17.40 í Ráðhúsinu og í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna mun gestum gefast kostur á að kaupa miða á sýninguna með 1.000 króna afslætti á staðnum í forsölu. Leikarar eru Nanna Kristín […]

Heima er þar sem ég halla mér

Heima er þar sem ég halla mér er leiksýning í óhefðbundinni leikmynd. Áhorfendur eru boðnir velkomnir inn í rútu á Kópaskeri og ævintýrið hefst. Svo keyri rútan áleiðis fyrir Melrakkaskléttuna til Raufarhafnar. Á leið sinni munu áhorfendur verða vitni af allskonar uppákomum, ekki bara inni í rútunni, heldur líka út um gluggann og á ákveðnum […]

Gríman 2015 – Úrslit

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 13. skiptið við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru þeir bræður Kjartan og Árni Pétur Guðjónssynir. Edda Heiðrún Bachman hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Hið sívinsæla leikrit Henrik […]

Gríman 2015

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin 2015 verða haldin með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu þann 16. júní nk. Kynnar kvöldsins eru þeir Kjartan og Árni Pétur Guðjónsson. Fjöldi skemmtiatriða er á dagskrá þetta kvöldið auk þess sem verðlaun verða veitt í 19 flokkum. Miðasala fer fram á midi.is Sjá tilnefningar hér. Facebook síða Grímunnar.

Leiklistarskólinn settur

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga var settur í nítjánda sinn að Húnavöllum sl. laugardag. Skólann sækja í ár 39 nemendur á þremur námskeiðum og fimm höfundar eru einnig í heimsókn alla vikuna. Námskeiðin sem boðið er uppá eru Leiklist II, kennari Ágústa Skúladóttir, Leikstjórn I, kennari Rúnar Guðbrandsson og sérnámskeiðið Haraldurinn, kennarar Bjarni Snæbjörnsson og Dóra […]

Spor, eða Moments, á leiklistarhátið í London

StepByStep leikhópurinn í London setur upp íslenska útvarpsverkið Spor, eða Moments, eftir Starra Haukson á leiklistarhátið í Crouch End í norður London í júní. Leikarahópurinn er alíslenskur og þýðing er í höndum Arons Trausta. Um sviðsútsetningu og leikstjórn sér sænski leikstjórinn, Maya Lindh. Verkið fjallar um Andra sem hefur upplifað þungan missi og hefur að […]

Tilnefningar til Grimunnar 2015

Tilnefningar til Grímunnar 2015 voru kunngjörðar við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í dag þann 3. júní. Allt í allt voru tilnefningarnar 89 talsins í 18 flokkum. Sýning ársins Billy Elliott eftir Lee Hall og Elton John í sviðsetningu Borgarleikhússins og Baltasars Kormáks Black Marrow eftir Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet í sviðsetningu Íslenska dansflokksins Don […]

MagnusMaria: Stutt, heit og hinsegin ópera

Magnus Maria er ný, norræn ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur við líbrettó Katarinu Gäddnäs. Óperan fjallar um mannréttindi, réttindi kvenna til að velja sér starf og fá sömu laun og karlmenn, rétt samkynhneigðra og kynskiptinga og hefur sterka skírskotun í dag. Sýnd í kl. 20.00 kvöld, 3. júní, í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Maria Johansdotter […]

Vorverkin hjá Leikfélaginu Sýnum

Leikfélagið Sýnir sýnir fjögur ný stuttverk við leikskólann Steinahlíð (við austari enda Suðurlandsbrautar) laugardaginn 30. maí kl. 17.00. Sýningin útileiksýning og hefur hlotið samnefnið Vorverkin en verkin sem sýnd verða eru: Át-tak eftir Ólaf Þórðarson í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar Bláskaði eftir  Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ferðamannastraumur eftir Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Ástu Elínardóttur Að […]

Er ekki nóg að elska? síðasta sýning

Er ekki nóg að elska? er raunsæisleg og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem ekki mega koma upp á yfirborðið því þau sverta þar með minningu mektarmanns. Jarðarför hans stendur fyrir dyrum og ekkjan berst hetjulega fyrir sóma hússins og minningu mikils stjórnmálamanns og hreinskiptins eiginmanns sem hefur gert afar óvenjulega kröfu í […]

Hið vikulega í Hafnarfirðinum

Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir Hið vikulega, stuttverkadagskrá þar sem höfundar fengu viku til að skrifa og leikarar og leikstjórar hafa viku til að æfa og setja upp. Í þetta skiptið er sýningin bönnuð börnum innan 16 ára. Ókeypis inn og öllum boðið (eldri en 16 ára). Sýningin byrjar kl. 20.00. Sýnt er í Gaflaraleikhúsinu, Víkingastræti 2. […]

Ást í meindýrum

Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Ást í meindýrum fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00. Þættirnir sem verða fluttir eru Ást í hraðbanka, Á veröndinni einn bjartan vormorgun, Bóksalinn, Líflína og Meindýr. Níu leikarar undir stjórn þriggja leikstjóra taka þátt. Dagskráin verður aðeins sýnd tvisvar og verður seinni sýningin laugardaginn 30. maí kl. 20.00. Félagsmenn eiga að venju […]

Opinn samlestur á At

Miðvikudaginn 27. maí kl 10:05 verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á verkinu At eftir Mike Bartlett.  Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess […]

Eldhúsið í Tjarnarbíói

Jo Strømgren Kompani sýnir Eldhúsið í Tjarnarbíó laugardaginn 23. maí kl. 14.00. Stórskemmtileg barnasýning með Ívari Sverrissyni í aðalhlutverki. Leiksýningin Eldhúsið segir frá eldri manni og lítilli stelpu, tveimur ólíkum persónum, sem finna autt hús. Þau vilja bæði búa í húsinu en það er óljóst hver var fyrri til að finna það. Upphefst galsafullur leikur um það hver […]

Möguleikhúsið frumsýnir Hávamál

Á tíu ára afmæli Möguleikhússins árið 2000, var leikverkið Völuspá eftir Þórarin Eldjárn frumsýnt í Tjarnarbíói á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin hlaut góðar viðtökur, vann til Grímuverðlauna og var sýnd á leiklistarhátíðum viða um lönd. Nú fagnar Möguleikhúsið 25 ára afmæli með uppsetningu á leikverkinu Hávamál eftir Þórarin Eldjárn og leikhópinn. Leikstjóri er Daninn Torkild […]

Stórfyndin sakamál á Eyjaslóð

Eins og svo oft áður setur reykvíska leikfélagið Hugleikur á svið nýtt íslenskt verk sem ber það stórbrotna nafn „Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið, taðreyktur sakamálatryllir“. Það gefur tóninn að alveg glimrandi skemmtun í litla leikhúsinu á Eyjaslóð. Anna Kristín Kristjánsdóttir, Sigrún Óskarsdóttur og Unnur Guttormsdóttir hafa sett saman skemmtilegt verk þar sem koma við […]

Dansveisla í Reykjavík og á Akureyri

Í komandi viku býður Íslendinga sannkölluð dansveisla þegar tveir erlendir danshópar mæta á klakann með stórfenglegar sýningar. Þetta er annars vegar pólski danshópurinn Polish Dance Theatre og hins vegar norskur danshópur sem kennir sig við stofnanda hans, Jo Strømgren Kompani. Koma danshópanna til landsins tengist samstarfi sem hóparnir tveir eiga við Sjálfstæðu leikhúsin og verður […]

Sýning og málþing um Inuk

Rúm fjörutíu ár eru síðan leiksýningin Ínúk-maðurinn var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 1974. Leikrit samið í hópvinnu til sýninga í skólum um eskimóa og áhrif  hins vestræna heims á menningu þeirra. Leiksýningin sló í gegn bæði heima og heiman og var boðið að sýna á leikhúshátíðum vítt og breitt um heiminn. Næstu fjögur árin var […]

Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálatryllir

Þann 9. maí 2015 lýkur leikfélagið Hugleikur leikári sínu með frumsýningu á nýju, hressu verki sem kallast Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálatryllir. Leikurinn gerist á hrörlegu veitingahúsi sem verið er að gera upp. Allt hangikjöt, rófur og Orabaunir hafa horfið af landinu með dularfullum hætti. Eru álfarnir að hefna sín af því að […]

Síðbúin rannsókn í Tjarnarbíói

DRAP HANN MANN EÐA DRAP HANN EKKI MANN? Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns […]

Endatafl í Tjarnarbíói

Fjórar persónur lokaðar inni í byrgi. Eru þetta endalok jarðlífsins? Það er augljóst að mikið liggur undir. Allt lífið. „Það er fátt jafn hlægilegt og óhamingjan. Hún er það hlægilegasta í heiminum,“ segir ein þeirra. Í þessu tragíkómíska verki Samuels Beckett eru harðstjórn og undirgefni í stöðugu samspili. Spyrja má hvort taflmennska Becketts felist ekki […]

Upp, upp – Æskusaga Hallgríms Péturssonar

Stoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“ Æskusögu Hallgríms Péturssonar eftir Valgeir Skagfjörð í Gerðubergi miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00. Aðeins þessi eina sýning og ókeypis inn! Leikritið segir frá uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins.  Verkið byggir að stærstum hluta  á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum […]

Ronja í Þjóðleikhúsið

Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2015 af dómnefnd Þjóðleikhússins. Úrslitin voru kynnt á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund BÍL að Melum í Hörgársveit í kvöld. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um sýninguna: „Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur er heillandi og fjörug barnasýning þar sem fjölmargir þættir koma saman […]

Leiklistarvefurinn uppfærður

Löngu tímabær uppfærsla á Leiklistarvefnum er loks komin til framkvæmda. Uppfærslunni fylgja eðlilega töluverðar breytingar og einnig ýmsar nýjungar. Helsta nýjungin er opnun Leikhúsbúðarinnar, vefverslunar með ítarlegri og betri upplýsingum um leikhúsvörur af ýmsu tagi. Hægt er að panta vörur á vefnum og láta senda eða sækja í verslun.