Stoppleikhópurinn sýnir nk. miðvikudag 11. febrúar í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara. Nú gefst almenningi því tækifæri til að berja verkið augum. Aðeins verður þessi eina sýning.

Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans og muna eftir honum af svipmikilli teikningu í gömlu Skólaljóðabókinni – „kallinn með hökuskeggið sem er svo grimmilegur til “. Og þjóðin hampar honum ennþá sem einu af kraftmestu þjóðskáldum sínum fyrr og síðar.
Hann var skapmikill orðhákur sem oft kom sér í vandræði og lenti upp á kant við nágranna sína. Hann var öfundaður og rógborinn. Hann var þjófkenndur og ákærður. Samt virtur og dáður fyrir hæfileika sína og mannkosti.

Þrír leikarar segja söguna og leika allar persónur; Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldismóður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur, nágranna, fjandmenn og vini. Leikritið geymir einnig sýnishorn af kveðskap hans, allt frá því fegursta til andstyggilegustu níðvísna, en fáir voru flinkari í að meitla saman kjarnmikið níð en Hjálmar.

Höfundar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikarar: Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir.
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.
Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.

Miðapantanir í síma: 898-7205.
Miðaverð: 1000 kr.
Sýningartími: 50 mínútur.

{mos_fb_discuss:2}