Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins.
20 leikarar taka þátt í sýningunni og eru aðalhlutverk í höndum Baldvin Alans Gunnarssonar, sem leikur Snúð, og Bjarka Þórs Sævarssonar, sem leikur Jónatan. Leikstjóri verksins er Sigrún Valbergsdóttir.
Frumsýnt verður 21. febrúar og að vanda er sýnt í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Bræðurnir Karl og Jónatan hittast aftur, eftir stutta jarðneska dvöl, í landinu Nangijala, þar sem sögur eru sagðar við varðeldana. Lífið í Kirsuberjadal mótast af grimma Riddaranum Þengli, sem ásamt eldspúandi drekanum Kötlu ræður þar ríkjum og valda þau skelfingu hvar sem þau koma. Karl og Jónatan, sem kallaðir eru bræðurnir Ljónshjarta, ákveða að berjast við hinn grimma Þengil og svartklæddu Riddarana hans.

Miðaverð er 2000 kr. en 1700 kr. fyrir hópa (10 eða fleiri), auk þess sem hægt er að panta allan salinn. Sýningin er við hæfi allra grunnskólabarna og því um að gera fyrir bekkjatengla og foreldraráð skólanna að kynna sér málið nánar.