Blúndur og blásýra, gamanleikrit í leikstjórn Völu Fannell, verður frumsýnt hjá Freyvangsleikhúsinu föstudaginn 18. október. Verkið er svört kómedía eftir Joseph Kesselring og hefur það verið sýnt víða um land undanfarin ár.
Systurnar Abby og Martha búa í ættarhúsinu ásamt bróðursyni sínum sem gengur ekki alveg heill til skógar. Þær hafa orð á sér fyrir að vera einstök gæðablóð sem vilja allt fyrir alla gera. Annar bróðursonur þeirra býr skammt frá og nýtur góðs af gestrisni systranna. Svarti sauðurinn í fjölskyldunni kemur heim með miður göfug áform og ýmis konar misskilningur kemur upp, því engan grunar að systurnar stundi það að eitra fyrir fólki og að tólf manns séu grafnir í kjallaranum í þeirra.
Leikritið var frumsýnt á Broadway árið 1941 og var þar á fjölunum í tæp þrjú ár við miklar vinsældir og hlaut mikil lof áhorfenda. Kvikmynd eftir leikritinu kom út 1944 og hlaut einnig mikil lof. Verkið hefur þótt mjög vinsælt í íslensku leiklistarflórunni, enda bráðskemmtilegt og drepfyndið.
Miðasala er á tix.is og í síma 857-5598 kl. 14-17 alla virka daga.
Nánari upplýsingar er að finna á vef félagsins www.freyvangur.is.