Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Senuþjófinn frumsýnir 30. ágúst leikverkið Beðið eftir Beckett. Frumsýnt verður í leikhúsi Kómedíuleikhússins í Haukadal Dýrafirði. Höfundur verksins er Trausti Ólafsson sem jafnframt leikstýrir.
Beðið eftir Beckett er guðdómleg kómedía sem fjallar um leikara nokkurn sem bíður eftir að Samuel Beckett skrifi fyrir sig nýtt leikrit. Á meðan á biðinni stendur styttir hann sér stundir með því að máta sig við persónur úr eldri leikritum skáldsins og bregður fyrir sig ögn af Dante, Artaud og Hallgrími Péturssyni. Einsog í sönnum grískum harmleik á leikarinn von á sendiboða guðanna.
Leikari er Elfar Logi Hannesson og einnig kemur ungur dýrfirskur leikari við sögu í leiknum, Þrymur Rafn Andersen. Leikmynd og búninga hannar Marsibil G. Kristjánsdóttir, höfundur tónlistar er Hjörleifur Valsson og Sigurvald Ívar Helgason hannar lýsingu.
Fyrstu þrjár sýningar á Beðið eftir Beckett verða sýndar Í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal, Dýrafirði. Vegna Kóvítans verður takmarkaður sætafjöldi í boði.
Miðasala er aðeins í síma: 891 7025.
Frumsýning sunnudaginn 30. ágúst kl. 20:01 – UPPSELT
2. sýning mánudaginn 31. ágúst kl. 20:02
3. sýning þriðjudaginn 1. september kl. 20:03
Stefnt er að því að sýna Beðið eftir Beckett víðar á landinu í vetur, m.a. hjá Leikfélagi Akureyrar í Hofi og í Tjarnarbíói í Reykjavík. Nánari upplýsingar um sýningar á verkinu má finna á fésbókarsíðu Kómedíuleikhússins og á komedia.is