Leikfélag Húsavíkur frumsýndi hið þekkta leikrit BarPar eftir Jim Cartwright laugardaginn 9. mars. Leikarar eru sjö talsins í fjórtán hlutverkum en leikstjóri verksins er Vala Fannell.

Leikritið Barpar gerist á bar í smábæ á Norður-Englandi. Þessi ónefndi bar sem einkum er frægur fyrir það “að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum”. Áhorfendur fá tækifæri til að sjá og upplifa eina kvöldstund í lífi hjónanna sem eiga og reka staðinn en einnig koma við sögu fjöldi gesta á öllum aldri. Hjónin virðast við fyrstu sín hata hvort annað – hún daðrar skammlaust við alla gestina og drekkur út gróðann á meðan hann reynir að hafa stjórn á hlutunum. Skrautlegir og óvæntir gestir setja strik í reikninginn og hafa mikil áhrif á þau hjónin. Þegar kemur að lokun barsins um kvöldið bresta allar stíflur með óumflýjanlegu uppgjöri hjónanna á skuggalegum harmleik fortíðarinnar. Það er svo spilað á allan tilfinningaskalann í þessari leiksýningu.

Næstu sýningar eru sem hér segir:
2. sýning þriðjudaginn 12. mars kl 20:00 2f1
3. sýning föstudaginn 15. mars kl 20:00
4. sýning laugardaginn 16. mars kl 20:00

Miðapantanir á midi@leikfelagid.is og í síma 464 1129 tveimur tímum fyrir sýningar.