Freyvangsleikhúsið frumsýnir barnaleikritið Bangsímon og Grísling í jólasveinaleit föstudag 17. nóvember. Um er að ræða frumsamið verk eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur sem byggir á hinum ástsælu Bangsímon og Gríslingi eftir A.A.Milne. Bangsímon er löngu heimsfrægur, ekki síst í gegnum Disney-myndirnar um hann en í sýningu Frevangsleikhússins  blandast sagan saman við klassískar íslenskar verur sem allir þekkja.
Í stuttu máli er söguþráðurinn á þá leið að Bangsímon og Gríslingur eru komnir alla leið til Íslands til þess að finna íslensku jólasveinana, eftir að þeir fréttu af því að á Íslandi væru hvorki meira né minna en 13 jólasveinar. Þegar sagan hefst eru þeir staddir í kofa á Íslandi og ætla að leggja af stað upp á fjall til þess að vita hvort þeir geti ekki fengið að hitta þá.
Ferðin gengur upp og ofan hjá þeim, en þeir hitta hinar ýmsu verur á leiðinni, eins og við er að búast uppi á íslensku fjalli.
Þeir halda þó ótrauðir áfram og reyna eftir fremsta megni að halda í trúnna á það að þeim takist ætlunarverk sitt og með óbilandi trú á sjálfan sig sem og á hvorn annan.

Tónlistin í verkinu er frumsamin af Eiríki Bóassyni og er hún létt og skemmtileg með hvortveggja frumsömdum textum sem og vísum frá Jóhannesi úr Kötlum.
Leikstjórn er í höndum Jóhönnu S. Ingólfsdóttur en er þetta í annað sinn sem hún leikstýrir stuttu barnaverki hjá Freyvangsleikhúsinu en hún leikstýrði einnig Karíus og Baktus fyrir jólin í fyrra.
Verkið er rúmur klukkutími að lengd, með hléi, og er því tilvalið fyrir yngstu kynslóðina.

Nánari upplýsingar og miðasala á freyvangur.is, feisbúkk síðu Freyvangsleikhússins, tix.is og í síma 857-5598.