Author: lensherra

Góðar kleinur hjá Leikfélagi Ölfuss

Kleinur eftir Þórunni GuðmundsdótturLeikfélag ÖlfussLeikstjóri: Árný Leifsdóttir Laugardaginn 8. febrúar frumsýndi Leikfélag Ölfuss verkið Kleinur eftir Þórunni Guðmundsdóttur.Verkið er í fimm þáttum og er í því rakin æfi Sigga smiðs, þó má segja að byrjað sé á öfugum enda ævi hans því verkið hefst á því að Gunna, eiginkona Sigga hefur verið burt kölluð úr þessum heimi og presturinn kemur í heimsókn til að undirbúa jarðarförina.Leikverkið er eins og áður segir í fimm þáttum sem hver fyrir sig gæti staðið sjálfstæður en saman falla þeir líka vel hvor að öðrum. Verkið gerist á sjötta eða sjöunda áratug seinustu aldar....

Read More

Ferðamaður deyr

Um næstu helgi verður áhugasömum boðið að koma á samlestur á leikritinu Ferðamaður deyr hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar.Leikritið er nýr farsi eftir höfundasmiðju leikfélagsins og fjallar um ófyrirséðar afleiðingar af fjölgun ferðamanna og hið íslenska hugvit sem á sér engin takmörk. Verkið er í raun óður til íslenskrar ferðaþjónustu.Leikstjóri verksins verður Ólafur Þórðarson. Hann hefur sótt fjölda námskeiða í leikritun og leikstjórn og verið virkur höfundur og leikstjóri hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar frá árinu 2014.Ólafur leikstýrði verkinu Ekkert að Óttast sem einnig var skrifað af höfundasmiðju LH og var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2015-2016. Stefnt er að frumsýningu í lok mars.Allir...

Read More

Fjallið og pólitíkusinn

Um þessar mundir standa yfir æfingar á nýju íslensku verki úr heimi stjórnmálanna hjá Leikfélagi Kópavogs. Þegar Einar ráðherra fær afleita niðurstöður úr skoðanakönnun rétt fyrir kosningar, er aðeins um eitt að ræða. Að koma með svo krassandi hugmynd, svo ótrúlega magnaða, að kjósendur kikna í hnjánum og geta ekki annað en kosið hann aftur. Sumir lofa öllu fögru en Einar er „maður framkvæmda“ og lætur verkin tala. Við sem lifum venjulegu lífi þekkjum ekki hvað það er að vera stöðugt metin í skoðanakönnunum. Stjórnmálamenn eru stöðugt undir smásjá og metnir í skoðanakönnunum og þurfa að taka mið af niðurstöðum....

Read More

Litla Hryllingsbúðin á Húsavík

Laugardaginn 25. janúar frumsýnir Leikfélag Húsavíkur Litlu Hryllingsbúðina eftir Howard Ashman og Alan Menken í leikstjórn Völu Fannell í Samkomuhúsinu á Húsavík. Litla Hryllingsbúðin er sígildur rokksöngleikur, fyrir alla fjölskylduna, fullur af húmor, kraftmikilli tónlist, heillandi persónum og krassandi söguþræði. Verkið fjallar um erkilúðann Baldur sem lifir frekar óspennandi lífi. Hann eyðir fábrotnum dögum sínum við vinnu í blómabúðinni hans Markúsar. Hann lætur sig dreyma um ástir Auðar sem vinnur með honum í búðinni. Dag einn uppgötvar Baldur undarlega plöntu sem hann nefnir Auði II í höfuðið á sinni heittelskuðu. Plantan vekur óskipta athygli og viðskiptin blómstra sem aldrei...

Read More

Sæhjarta í Tjarnarbíó

Þann 14. febrúar frumsýnir hið alþjóðlega verðlaunaða Handbendi Brúðuleikhús verkið Sæhjarta, sem er einleikið brúðuverk fyrir fullorðna í Tjarnarbíói. Dularfull kona á drungalegri strönd. Hún er rekald á ströndinni og úrhrak samfélagsins. Verðlaunaleikhúsið Handbendi Brúðuleikhús kynnir þessa nýju, einleiknu og einstöku brúðulistasýningu fyrir fullorðna. Hennar margslungna furðusaga er sögð með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbundins leikhúss. Sæhjarta endurskapar og endurvekur gömlu sagnirnar um urturnar sem komu á land og fóru úr selshamnum til að búa og elska meðal manna. Handrit og leikur: Greta Clough Leikstjórn: Sigurður Líndal Þórisson Tónlist og hljóðmynd: Júlíus Aðalsteinn Róbertsson Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson Dagsetningar:...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert