Erindi Þorgeirs Tryggvasonar á málþinginu Leikstjórn í áhugaleikhúsi 29.9.2001

Leikstjórn í áhugaleikhúsi – Faglegt öryggi eða listrænn metnaður Þegar ég tók að mér að flytja framsögu á þessu málþingi þurfti ég að byrja á að setja niður fyrir mér hvaðan ég myndi nálgast viðfangsefnið – leikstjórn í áhugaleikhúsi. Ég er nefnilega í þeirri stöðu að horfa á leiklist áhugamanna úr nokkuð mörgum áttum þessi […]

Einleikir

Einleikir Það þarf enginn að ganga þess dulinn að einleikir eru í tísku. Þetta er öllum ljóst sem voru á einþáttungahátíð Bandalagsins í Stykkishólmi síðastliðið vor, og öðrum er bent á að kíkja í síðasta leiklistarblað. Af níu þáttum voru fjórir einleikir, hvorki meira né minna. Ekki er gott að segja hvað veldur, en óneitanlega […]

Amatørkunstens særlige kvaliteter

Amatørkunstens særlige kvaliteter – tiden læger alle sår, men hvad med arrene? (Bert Brecht) Lad os blive klar over, hvad det er, vi taler om: Hvad er en amatør? Hvad er kunst i forbindelse med amatørbegrebet? Og hvordan er forholdet mellem kvalitet og kvantitet? Af Jacob Oschlag, konsulent i Dansk Amatør Teater Samvirke.

Breytingar á Leiklistarvefnum

Nýr og betri vefur Glöggir lesendur taka eflaust eftir því að Leiklistarvefurinn hefur tekið breytingum. Ástæðan er sú að samið hefur verið við nýjan þjónustuaðila og  tekið hefur verið í notkun nýtt umsjónarkerfi fyrir vefinn. Þessu fylgja auknir möguleikar og væntanlega enn betri þjónusta við ykkur. Ef þið viljið kynna ykkur helstu breytingar, lesið meira […]

Fátæka leikhúsið frumsýnir

Fátæka leikhúsið frumsýnir, sunnudagskvöldið 14.ágúst Kl. 20.00, leikritið Rósinkrans og Gullinstjarna eru dauðir eftir Tom Stoppard. Snorri Hergill Kristjánsson þýddi verkið. Leikstjóri er Karl Ágúst Þorbergsson og er þetta hans fyrsta leikstjórnarverkefni.  

NEATA hátíð í Eistlandi

Hugleikur sýndi nýverið leikritið "Undir hamrinum" á leiklistarhátíð NEATA í bænum Viljandi í Eistlandi. Einnig voru með í för nokkrir stjórnarmenn BÍL sem sátu aðalfund NEATA og kynntu sér framkvæmd hátíðarinnar.

Afmælissýning í Loftkastalanum

Loftkastalinn fagnar 10 ára afmæli sínu næstkomandi föstudag, þann 12. ágúst. Það var í ágúst 1995 sem starfsemi leikhússins hófst eftir að vélsmiðjunni í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg hafði verið breytt í hefðbundið leikhús með sætum fyrir 400 áhorfendur. Nú tíu árum síðar er Loftkastalinn enn stærsta einkarekna leikhúsið. Fyrsta verkefni Loftkastalans var söngleikurinn Rocky […]

Keðjuleikrit á Vefnum

Keðjuleikrit breska Þjóðleikhússins verður sífellt skrítnara og skemmtilegra. Fylgist með daglega á http://www.nationaltheatre.org.uk/nt25/chainplay/ og svo er hægt að taka þátt í vangaveltum um stykkið og höfundana hér.

Athyglisvert…

Umræðan um athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins hitnar enn. Nú hefur Þorgeir Tryggvason blandað sér í umræðuna.

Um athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins

Um helgina sýndi Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar sýningu sína á "Landsmótinu" í Þjóðleikhúsinu. Hörður Sigurðarson sá sýninguna á sunnudag og varð það honum tilefni hugleiðinga um hið árlega val á "Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins".

Jólagjafir áhugaleikarans

Loks lætur Listamaðurinn ógurlegi aftur á sér kræla eftir nokkurt hlé og þótti mörgum kominn tími til. Nú er hann í jólaskapi og hefur tekið saman jólagjafalista áhugaleikarans.

Niðrá bæjum blæs ei vindur…

Það er sennilega fullmikið að segja að ritdeila sé í uppsiglingu en altént hefur Þorgeir Tryggvason sent Eyvindi P. Eiríkssyni svar við grein hans um pólítískt leikhús.

Hálf öld að baki

Bjarni Guðmarsson sagnfræðingur hefur setið sveittur við að rita sögu BÍL í tilefni af 50 ára afmæli samtakanna árið 2000. Hann gefur okkur forsmekk að því sem koma skal í skemmtilegum útdrætti.

Meiri fíflin, þessir Ibsen, Brecht og Fo!

"..leikhúss- og bókmenntafólk… [er] …einfaldlega skíthrætt við allt alvöruróttækt…" Einn þátttakenda í Leikþáttasamkeppninni hefur sent vefnum bréf þar sem hann tjáir sig um stöðu mála í íslenskri leikritun.

Tvöfaldur Shakespeare

"Ég hefði líklega látið segja mér það tvisvar fyrir nokkrum vikum ef mér hefði verið sagt að tvær frumlegar og frábærlega vel heppnaðar Shakespearesýningar væru í gangi í einu, og það í sama húsinu." Þorgeir Tryggvason hefur skrifað hugleiðingu um Shakespearesýningar vetrarins.

Söngvaseiður í Þjóðleikhúsinu – Fréttatilkynning

Söngleikurinn Söngvaseiður, sýning Litla leikklúbbsins og Tónlistarskólans á Ísafirði, var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2002-2003. Söngvaseiður verður sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnudagskvöldið 25. maí nk.

Tréhausinn 2005 – Þorgeir Tryggvason

Þorgeir Tryggvason skrifar: Í ár dugar ekkert minna en tvíhöfði til að verðlauna það sem vel var gert í áhugaleikhúsinu á Íslandi. Við Hrund Ólafsdóttir skiptum verkum bróður- og systurlega þannig að til að fá heildarmynd af afrekum vetrarins ákváðum við að veita hvort sinn Tréhaus. Ég undanskil mitt eigið félag, Hugleik. Helstu verðlaunaflokkar eru […]

Alþjóða leikhúsdagurinn 27. mars 2003

Alþjóða leikhúsmálastofnunin, ITI,  hefur jafnan fengið virtan leikhúslistamann til að semja ávarp dagsins og það hefur síðan verið þýtt á þjóðtungur aðildarlandanna og birt og flutt þennan dag. Árið 1999 samdi frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands og leikhússtjóri ávarpið að beiðni ITI. Í ár er það þýska leikskáldið Tankred Dorst sem er höfundur ávarpsins.

Alþjóða leikhúsdagurinn 27. mars 2003 – Íslenskt ávarp

Frá því Ísland gerðist aðili að ITI hefur íslenskur leikhúslistamaður verið fenginn ár hvert til að semja ávarp í tilefni dagsins og hefur sú hefð skapast að ávarpið birtist í dagblöðum, er flutt af höfundi í útvarpi og af einhverju leiksviði þennan dag og hafa aðrir leikhúslistamenn stigið fram á svið fyrir sýningar í leikhúsum […]

Metölulisti Bandalagsins, fyrri hluti – mest seldu leikritin 2002

Bandalag íslenskra leikfélaga á heimsins stærsta safn leikrita á íslenskri tungu. Þar er að finna bróðurpart þeirra leikrita sem leikin hafa verið hérlendis frá upphafi leiklistar. Ármanni Guðmundssyni datt í hug að áhugavert væri að skoða hvaða leikrit og hvaða höfundar eru vinsælust hjá íslenskum leikritakaupendum og tók saman lista yfir metsöluleikrit og metsöluhöfunda ársins […]

Áramótaheit áhugaleikarans 2003

Áhugaleikarar eru ekkert öðruvísi en aðrir landsmenn að því leyti að þeim finnst gaman að strengja áramótaheit. Þeir eru að vísu ekkert líklegri en aðrir til að efna þau en ef Gallup gerði skoðanakönnun á því hver eru vinsælustu áramótaheit hins dæmigerða íslenska áhugaleikara, yrði útkoman hugsanlega einhvern veginn svona.

Íslenskur áhugaleikari í útlöndum

Hinn geðþekki fyrrverandi ritari Bandalagsins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir býr nú í Montpellier í S-Frakkalandi. Hún hefur gert örlitla úttekt á menningar- og mannlífi þar í borg.

Tréhausinn 2005 – Hrund Ólafsdóttir

Hrund Ólafsdóttir skrifar: Leiksýningar sem ég skrifaði gagnrýni um fyrir Morgunblaðið á síðastliðnu leikári voru 37 talsins. Auk þess sá ég 6 sýningar sem einnig verða lagðar undir Tréhausinn. Sjálf kom ég að tveimur sýningum til viðbótar og er því vanhæf til þess að dæma þær.

Tréhausinn 2005

Tréhausinn, óopinber verðlaun áhugaleikhússins er nú veittur í þriðja sinn. Þorgeir Tryggvason reið á vaðið og skapaði fyrirbærið árið 2003 og Hrund Ólafsdóttir hélt merkinu á lofti á síðasta leikári. Í ár dugar hinsvegar ekkert minna en tvíhöfði til að verðlauna það sem vel var gert í áhugaleikhúsinu á Íslandi. Kemur það til af því […]

Einleikir

  Grein um einleikjaformið og möguleika þess. Áður birt í Leiklistarblaðinu 1998.

Alþjóðlegi leikhúsdagurinn – Íslenskt ávarp

Frá því Ísland gerðist aðili að ITI hefur íslenskur leikhúslistamaður verið fenginn ár hvert til að semja ávarp í tilefni dagsins og hefur sú hefð skapast að ávarpið birtist í dagblöðum, er flutt af höfundi í útvarpi og af einhverju leiksviði þennan dag og hafa aðrir leikhúslistamenn stigið fram á svið fyrir sýningar í leikhúsum […]

Alþjóðlegi leikhúsdagurinn 27. mars 2005

Alþjóða leikhúsmálastofnunin, ITI,  hefur jafnan fengið virtan leikhúslistamann til að semja ávarp dagsins og það hefur síðan verið þýtt á þjóðtungur aðildarlandanna og birt og flutt þennan dag. Í ár er það franska leikskáldið Ariane Mnouchkine sem er höfundur ávarpsins.  

Hugleikur og Grace prinsessa

Hugleikur er á leið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Mónakó með sýningu sína Undir Hamrinum, sem reyndar heitir Country Matters í þessari styttu ferðaútgáfu. Leiklistarhátíðin í Mónakó er á vegum alþjóða áhugaleikhússambandsins AITA/IATA og hefur verið haldin á fjögurra ára fresti síðastliðin fimmtíu ár eða þar um bil.

Athyglisverðasta áhugaleiksýning

 Fulltrúi dómnefndar Þjóðleikhússins kom á aðalfund Bandalags ísl. leikfélaga þann 7. maí og tilkynnti niðurstöðu dómnefndar. Það var Stúdentaleikhúsið í Reykjavík með sýninguna Þú veist hvernig þetta er sem varð hlutskarpast og óskar Leiklistarvefurinn félaginu innilega til hamingju.  

„Aðeins til tvenns konar leiklist – góð og slæm“

Íslenskt áhugaleikhús fær hrós Í Morgunblaðinu 12. júlí síðastliðinn er viðtal við Danute Vaigauskaite sem var sérstakur heiðursgestur leiklistarhátíðarinna Leikum núna! Hún tjáir þar m.a. skoðun sína á íslensku áhugaleikhúsi sem hún segir að sé "… einstaklega gott og í háum gæðaflokki".

Dauði og jarðarber

Félag Flóna frumsýndi grínharmleikinn Dauða og jarðarber  laugardaginn 11.  júní  í Gúttó í Hafnarfirði.  Sýningin er farandsýning sem ætlunin er að ferðast með um landið í sumar.   Leikhópurinn Félag flóna. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Leikarar: Gunnar B. Guðmundsson, Snorri Engilbertsson Höfundar; Ágústa Skúladóttir, Björn Thorarensen, Gunnar B. Guðmundsson, Snorri Engilbertsson

Hvunndagshetja í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýndi í Hjáleigunni um sl. helgi leikverk, sem hlotið hefur nafnið „Allra kvikinda líki“ og er unnin af leikstjórum og leikhóp upp úr breska teiknimyndablaðinu VIZ. Fulltrúi leiklistarvefsins var á staðnum.

Undan ægivaldi ömmu

Ný íslensk leiksýning, Dauð og jarðarber, sem að sögn aðstandenda er grínharmleikur, var á fjölunum í Gúttó í Hafnarfirði í gær. Leiklistarvefurinn átti auðvitað mann á staðnum.

Kontrabassinn

Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir einleikinn Kontrabassann eftir Patrick Süskind í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og Kjartans Óskarssonar í leikstjórn Gunnars B. Gunnarssonar. Greinarhöfundur tók hús á þeim Gunnari B. Guðmundssyni leikstjóra og Halldóri Magnússyni stórleikara eitt síðkvöld í nýliðinni viku þar sem þeir voru við æfingar á Kontrabassanum eftir Patrick Süskind sem Leikfélag Hafnarfjarðar […]

Leikdómar á vefnum

Þorgeir Tryggvason sem er leiklistaráhugamönnum að góðu kunnur, hefur starfað sem leiklistargagnrýandi á Morgunblaðinu síðan árið 2000. Hann hefur nú gert alla sína leikdóma á umræddu tímabili aðgengilega á vef sem hann nefnir Úr glerhúsinu. Einnig má í því sambandi benda á að hægt er nálgast leikdóma sem birst hafa á Leiklistarvefnum hér.

Fyrri vefir vikunnar

Vefur vikunnarHugleikur í Reykjavík fagnaði 20 ára afmæli þann 24. apríl og opnaði af því tilefni nýjan vef félagsins. Þar er að finna hafsjó af upplýsingum um starfsemi félagsins frá upphafi og þá einstaklinga sem að því hafa komið ásamt söngtextum úr leikritum og ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari. Vefur vikunnar – Leiklistarnám á […]