Author: lensherra

Hlátur, gleði og tempó

Pétur Guðjónsson fjallar um sýningu Freyvangsleikhússins á Tom, Dick og Harry Tom, Dick og Harry segir frá hjónunum Tom og Lindu sem bíða heimsóknar frá ættleiðingarstofu – og því þarf allt að vera fullkomið. Þá mæta bræður Toms og úr verður óstöðvandi flækja. Klassískur farsi þar sem góðar fyrirætlanir breytast í algjört stjórnleysi. Það voru engar hraðatakmarkanir í Freyvangi á frumsýningu síðastliðið föstudagskvöld. Strax í upphafi keyrir leikritið af stað af miklum krafti og flækjan er byggð upp af skýrleika og öryggi. Uppbygging óreiðunnar var greinileg og áhorfandinn missti aldrei þráðinn. Bernharð Arnarson ber sýninguna uppi. Hann leikur af...

Read More

Tom, Dick og Harry í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikinn Tom, Dick og Harry eftir Ray Cooney og son hans Michael Cooney, í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Frumsýnt verður 20.febrúar og sýnt verður um helgar fram í apríl. Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingar skrifstofunni. Bræður Toms þeir Dick og Harry eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru þeir með allskonar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið, bæði fyrir sjálfa sig sem og fyrir Tom og Lindu. Inn í þetta fléttast svo ýmsar persónur sem flækja málin....

Read More

Leikdeild Eflingar frumsýnir Þrek og tár

Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar verður á fjölunum hjá leikdeild Umf. Eflingar á Breiðumýri í vetur. Leikstjóri er María Pálsdóttir og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson. Verkið er söngleikur sem fjallar um líf söngelskrar kaupmannsfjölskyldu í Vesturbænum á sjöunda áratugnum. Í verkinu koma fyrir þrjár kynslóðir fjölskyldunnar en saga sonarins Davíðs er rauði þráðurinn sem leiðir okkur í gegnum verkið og fléttast ýmis vinsæl lög frá þessum tíma inn í leikritið s.s. Þrek og tár, Í rökkurró og fleiri. Lífið er þó e.t.v. ekki allt dans á rósum og má finna ýmis siðferðileg álitamál inn á...

Read More

Halldór E. Laxness

Netfang: helaxness@gmail.com Halldór E. Laxness (leikstjóri) er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann stundaði leiklistarnám á Ítalíu og starfaði þar og á Spáni sem leikari um tveggja ára skeið með ítalska leikhópnum Teatro della Fortuna. Í Kanada starfaði Halldór sem leikstjóri við Banff Center for the Arts, þar sem frumflutt voru tvö fjöltæknileikverk eftir hann, Journey through a mirror og Abandond 1504. Halldór hefur leikstýrt fjölda sýninga allt frá árinu 1981 bæði hérlendis og einnig erlendis og má þar nefna verk eins og: Jarðskjálftrar í London, Slavar, Leyndarmál rósanna, Vefarinn mikli frá Kasmír, Túskildingsóperan, Baal, Kákasíska krítarhringinn, Mahagonny hjá...

Read More

Beint í æð hjá Litla leikklúbbnum

Litli leikklúbburinn frumsýndi farsann Beint í æð eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði um helgina. Sýningar verða áfram nú í febrúar. Beint í æð er klassískur farsi eins og þeir gerast bestir: Leyndarmál, misskilningur á misskilning ofan og allt á suðupunkti. Alls koma um 30 manns að uppsetningunni og þar af eru 10 leikarar. Leikstjóri er Birgitta Birgisdóttir, en þetta er í fyrsta sinn sem hún leikstýrir hjá LL. Birgitta hefur þó áður leikstýrt á Ísafirði, hjá Leikfélagi Menntaskólans á Ísafirði, svo hún er öllum hnútum kunnug í Edinborgarhúsinu. Sýningar standa yfir frá...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert