Námskeið í leikhúsförðun
Fyrirhugað er að halda tvö námskeið í leikhúsförðun í október. Það fyrra, sem er byrjendanámskeið, er þegar orðið fullt og kominn biðlisti en enn er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeiðið. Skráningu lýkur laugardaginn 15. september
Leikárið að hefjast hjá Stoppleikhópnum
Þá er nýtt leikár að hefjast hjá Stoppleikhópnum og óhætt að fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi dagskráin verið eins fjölbreytt en leikhópurinn mun í vetur sýna 6 íslensk verk ætluð börnum og unglingum. Þar af frumsýnir leikhópurinn 3 ný verk, 2 fyrir unglinga og eitt fyrir börn. Allar sýningarnar eru farandsýningar sem unnt er […]
Fjárföflunarsýningar á Hnerranum
Leikfélag Selfoss er á leið með gamanleikinn Hnerrann eftir Anton Chekov á leiklistarhátíð í Rokiskis í Litháen dagana 5.-.7. október nk. og sýnir af því tilefni tvær aukasýningar af verkinu síðustu helgina í september. Sýnt er í Leikhúsinu við Sigtún og leikstjóri Hnerrans er Hörður Sigurðarson. Þeir sem misstu af þessari skemmtilegu sýningu ættu […]
Verkefni Kómedíuleikhússins leikárið 2007 2008
Kómedíuleikhúsið fagnar 10 ára afmæli í ár og er því komandi leikár sérlega viðmikið og glæsilegt. Í nóvember frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan einleik Jólasveinar Grýlusynir eftir Elfar Loga Hannesson og Soffíu Vagnsdóttur. Leikurinn er byggður á nýjum jólasveinakvæðum eftir Soffíu. Kvæðin úr sýningunni verða gefin út á bók í tilefni að frumsýningunni með teikningum eftir Marsibil […]
Leikárið 2007-2008 í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið endurheimtir brátt sinn forna glæsileika eftir viðamiklar utanhússviðgerðir. Vetrardagskráin verður ekki síður glæsileg en húsið sjálft en í vetur frumsýnum við fjögur ný íslensk leikrit, tvö eldri íslensk verk og sjö erlend leikrit. Á nýju leikári verða fjögur ný íslensk verk frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Áslaug Jónsdóttir, margverðlaunuð bókverkakona, skrifar sitt fyrsta leikverk fyrir Þjóðleikhúsið […]
Nýtt leikár hafið hjá Möguleikhúsinu
Möguleikhúsið er nú að hefja átjánda leikár sitt, en frá upphafi hefur leikhúsið lagt áherslu á að bjóða upp á frumsamið íslenskt efni fyrir börn og unglinga og verður þetta leikár svo sannarlega engin undantekning frá þeirri reglu. Það verða níu íslensk verk á boðstólum hjá Möguleikhúsinu í vetur, ein ný sýning, ein sem tekin […]
Opið hús í Borgarleikhúsinu
Í tilfefni af því að 111 leikár Leikfélags Reykjavíkur er að hefjast verður opið hús í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 2. september, á milli klukkan 15 og 17. Boðið verður uppá fjölbreytta dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Jafn framt verður boðið upp á veitingar fyrir unga sem aldna og starfsfólk Borgarleikhússins, með leikhússtjórann […]
Lík í óskilum í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 1. september verður fyrsta frumsýning leikársins hjá Leikfélagi Reykjavíkur og er hún á Litla sviði Borgarleikhússins. Það er farsinn Lík í óskilum eftir Anthony Neilson sem opnar leikárið hjá LR og það er Steinunn Knútsdóttir sem leikstýrir.
Aðalfundur Leikfélags Kópavogs haldinn í nýju leikhúsi
Mánudaginn 27. ágúst kl. 20:00 mun Leikfélag Kópavogs halda aðalfund sinn í nýju húsnæði félagsins að Funalind 2 í Kópavogi. Miklar breytingar hafa átt sér stað að undanförnu hjá félaginu og miklar breytingar eru í vændum. Á aðalfundinum verður, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, kynntur nýr rekstrarsamningur, rætt um fyrirhugaðar breytingar á Funalindinni, ásamt mörgu öðru. Stjórn […]
Nýtt leikár kynnt hjá Leikfélagi Akureyrar
Leikfélag Akureyrar hefur nú kynnt dagskrá leikársins 2007-2008. Áfram er unnið eftir sömu stefnu og sérstök áhersla er lögð á að ná ekki síður til yngri leikhúsgesta en þeirra sem eldri eru. Sem fyrr einbeitir leikhúsið sér að uppsetningu nútímaverka, íslenskra og erlendra. Fyrsta frumsýning vetrarins er á fjölskylduleikritinu Óvitar! eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn […]
Síðustu sýningar á Dýrunum í Hálsaskógi
Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt barnaleikritið sívinsæla, Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner, undir berum himni víða um land. Nú eru aðeins fimm sýningar eftir, þar eru 4 í Elliðaárdalnum í Reykjavík og ein á Blómstrandi dögum í Hveragerði en þar verður sýnt í Lystigarðinum. Sýningarnar í Elliðaárdalnum eru í dag, miðvikudaginn 22. […]
Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni
Lýðveldisleikhúsið flytur annan hluta fjölleiksýningarinnar Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni við Barónsstíg á Menningarnótt. Þessi hluti ber nafnið Uppflosnað fólk og er eftir Benóný Ægisson. Fyrsti hluti verksins, Þeir stífluðu dalinn minn, var fluttur í innilauginni í Laugardalnum fyrr í mánuðinum. Leikarar í þessum hluta eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og […]
Bubbi kóngur á Menningarnótt
artFart sviðslistahátíðinni lýkur á uppfærslu á hinu klassíska verki Alfred Jarry, Bubba Kóng, en hún verður sýnd á Menningarnótt kl. 21.30 í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13. Aðeins verður sýnd þessi eina sýning.
artFart 2007
Nú stendur yfir hátíðin artFart. Hátíðin er samstarf ungra sviðslistamanna á Íslandi og er skipulögð af sambandi ungra sviðslistamanna, en skipuleggjendur hátíðarinnar í ár eru þau Ásgerður G. Gunnarsdóttir, Karl Ágúst Þorbergsson og Sigurður Arent Jónsson. Hátíðin stendur yfir dagana 28.júlí. – 19. ágúst. Verkin verða sýnd í húsnæði leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu (gamla nemendaleikhúsinu) […]
Góð álfastund í Öskjuhlíð
Það var skemmtilegt að ganga í svalri kvöldgolunni upp göngustíginn í Öskjuhlíð og setjast síðan í grasið í einu af gömlu olíutankastæðum Breta úr seinni heimsstyrjöld. En það var ekki neinn stríðsógn í lofti heldur var leikfélagið Sýnir að kynna áhorfendum fyrir álfum og huldufólki með tveimur leikþáttum sem eiga uppruna sinn úr þjóðsögunum. Á […]
Leikfélagið Sýnir í Öskjuhlíð
Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Vakandi manns draumur næstkomandi miðvikudag, þann 1. ágúst klukkan 20 í Öskjuhlíð. Verkið er spunaverk unnið úr þjóðsögum um álfa og huldufólk. Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem starfar á landsvísu og á það einmitt 10 ára afmæli nú í ár. Félagið hefur sett upp útileiksýningar á hverju sumri síðan 1998. Leikstjórar […]
Íslenskur leikhópur sýnir í Suður-Kóreu
Annað hvert ár heldur Alþjóðasamband áhugaleikhúsa (IATA/AITA) leiklistarhátíð samhliða aðalfundi hreyfingarinnar. Í annað hvert skipti er viðburðurinn í Mónakó, en á móti annars staðar í heiminum. Þetta árið verður hátíðin haldin í borginni Masan í Suður-Kóreu. Hér má sjá nánari upplýsingar um hana. Í annað skiptið í röð á Bandalag íslenskra leikfélaga sýningu á þessari […]
Galdrakarlinn á Suðureyri
Leikfélagið Hallvarður Súgandi frumsýnir í kvöld leikritið Galdrakarlinn í Oz á Suðureyri við Súgandafjörð. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Sýningin er hluti af bæjarhátið Súgfirðinga, Sæluhelgi, sem haldin verður þar um helgina. Ólánið hefur elt þá sem starfa við leiksýninguna. Þar sem liðið er af æfingum hafa sjö þurft að leita sér lækninga og á síðustu […]
Ráðstefna um samvinnu kynslóðanna í áhugaleikhúsi
Ráðstefna um samstarf kynslóðanna í áhugaleikhúsi verður haldin í Lingen í Þýskalandi í október. Leikstjórum, leikhúsfræðingum og fulltrúum áhugaleikhópa frá Evrópulöndum er boðið að taka þátt í þessari ráðstefnu. Hún stendur frá fimmtudeginum 11. október kl. 17.00 til sunnudagsins 14. október kl. 12.00. Þáttökugjald eru 220 evrur, fæði, húsnæði og leiksýningar eru innifaldar. Nánari upplýsingar […]
Memento mori, aðeins um helgina!
Í lok júlímánaðar heldur hópur frá leikfélaginu Hugleik og Leikfélagi Kópavogs á leiklistarhátíð alþjóðlega áhugaleikhússambandsins IATA í Masan-borg í Suður-Kóreu. Þar verður sýnt leikritið Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. júlí verða haldnar opnar æfingar til fjáröflunar fyrir ferðina. Þetta verður í fyrsta sinn í tvö ár […]
Act alone 2007 hefst í dag
Leiklistarhátíðin Act alone verður sett í dag, miðvikudaginn 27. júní, í Alþýðuhúsinu á Ísafirði. Næstu dagar verða svo alveg einleiknir með fullt af sýningum og viðburðum. Kómedíuleikhúsið á Ísafirði stendur fyrir hátíðinni sem helguð er einleikjum og verður haldin fjórða árið í röð nú í sumar. Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum og […]
Gríman – verðlaunahafar 2007
Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Íslensku óperunni og í beinni útsendingu Sjónvarpsins 15. júní síðastliðinn. Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson hlutu heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands en sigurvegari kvöldsins var án vafa Benedikt Erlingsson sem rakaði að sér verðlaunum, m.a. sem leikari og leikstjóri ársins. Sjá má yfirlit yfir alla verðlaunahafa á vef Grímunnar, www.griman.is.
Skóli BÍL settur í ellefta sinn
Laugardaginn 9. júní var Leiklistarskóli Bandalagsins settur að Húsabakka í Svarfaðardal í ellefta sinn. Nemendur við skólann eru um 40 talsins hjá þremur kennurum, þeim Ágústu Skúladóttur, Agli Heiðari Antoni Pálssyni og Stephen Harper. Stephen þessi kemur frá Bretlandi og á myndinni hér til hægri má sjá grímur sem hann vinnur með í kennslunni. Nemendur […]
Alþjóðleg leiklistarhátíð í Nova Scotia
Liverpool International Theatre Festival 2008 Þessi hátíð er haldin annað hvert ár og hingað til hefur engin íslenskur hópur sótt hana. Nú vilja Nova Scotia-búar breyta því og bjóða okkur til leiks, bjóðast meir að segja til að framlengja umsóknarfrestinn eitthvað (sem annars er til 14. júní n.k.) Í reglum hátíðarinnar segir að þar skuli […]
Umræðurfundur á Hallormsstað 4. maí 2007
Guðrún Halla Jónsdóttir, formaður Bandalagsins, stýrir fundi. Fundarmenn kynna sig. Gagnrýnimál Morgunblaðsins, Þorgeir Tryggvason reifaði málið. Morgunblaðið hætti að senda gagnrýnendur á sýningar áhugaleikhúsa í haust sem leið. Bandalagið gerði athugasemd við það og í framhaldinu var haldinn fundur með ritstjóra Morgunblaðsins, ritstjóra menningarefnis, og fleirum. Í framhaldi af því var stjórn Bandalagsins falið að […]
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 5. og 6. maí 2007 á Hallormsstað
1. Fundarsetning. Kosning tveggja fundarstjóra og fundarritara sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Fundarstjórar: Þórhallur Pálsson og Regína Sigurðardóttir. Fundarritarar: Sigríður Lára Sigurjónsdóttir og Ármann Guðmundsson. Til fundarins var löglega boðað. 2. Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og afhendir atkvæðaspjöld, skýrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör og auglýsir eftir tillögum. Regína Sigurðardóttir, formaður kjörnefndar, kynnti starfandi […]
Leikfélag Fljótsdalshéraðs í Þjóðleikhúsinu
Loksins geta leikhúsunnendur barið augum sýninguna dularfullu sem hreppti titilinn Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins í árlegri samkeppni Þjóðleikhússins. Sýningar verða tvær, fimmtudag 7. júní og föstudag 8. júní og er þegar uppselt á fyrri sýninguna. Miðapantanir eru hjá miðasölu Þjóðleikhússin. Listin að lifa var sett upp í tilefni af 40 ára afmæli Leikfélags Fljótsdalshéraðs. Í tilefni […]
Tilnefningar til Grímunnar 2007
Tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna 2007 voru gerðar opinberar í Íslensku óperunni föstudaginn 1. júní. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhenti þeim listamönnum viðurkenningar er tilnefningar hlutu.
Limbó í Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir leiksýninguna Limbó í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar. Um er að ræða fjölbreytta og skemmtilega stuttverkadagskrá sem gerist í undraheimum Limbó. Sjö verk eru á dagskránni eftir fimm höfunda. Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni en æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun maí mánaðar. Um hönnun á sviðsmynd sá Bjarni Þór […]
Einleikur í Jaðarleikhúsinu
Einleikurinn Superhero eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur verður frumsýndur í Jaðarleikhúsinu 1. júní næst komandi kl. 20.00. Sýnt varður í Tilrauna og listasmiðjunni Jaðarleikhúsinu að Miðvangi 41 í Hafnarfirði, (bak við Samkaup). Leikari er Erik Hakansson en leikið er á ensku. Superhero er dramatískur, súrealískur gamanleikur. Peter Brown er ungur maður sem stendur frami fyrir gríðarlega […]
Hernám í Hrísey
Leikklúbburinn Krafla fagnar um þessar mundir 30 ára starfsafmæli en margt hefur verið brallað og margar góðar sýningar sýndar á þessum árum. Undanfarið hafa félagar í Kröflu æft verk sem þeir sömdu sjálfir í tilefni afmælisins. Leikstjóri er Linda María Ásgeirsdóttir. Verkið ber heitið Hernám í Hrísey og fjallar um eins og titillinn ber með […]
Tónlistardagskrá hjá Hugleik
Eitt af aðalsmerkjum leikfélagsins Hugleiks hefur ætíð verið frumsamin tónlist. Í leikritum félagsins, sem einatt eru líka frumsamin, hefur heyrst allt frá óperu til þungarokks. Þar hafa heyrst ættjarðarsöngvar, bölbænir, fagnaðarsöngvar yfir andlátum manna og sungin bréf að handan. Hugleikur ætlar að enda leikárið að þessu sinni með tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum, þar sem flutt verða […]
Allra síðustu aukasýningar á Sex í sveit
Gríðarlega góð aðsókn hefur verið að Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks, Sex í sveit í leikstjórn Jón Stefáns Kristjánssonar. Þrjár aukasýningar í síðustu viku seldust upp á fáum dögum svo nú hefur verið ákveðið að bæta enn við tveimur aukasýningum. Þær verða í Bifröst: laugardaginn 26. maí kl. 15:00 mánudaginn 28. maí kl. 15:00. Miðapantanir alla daga […]
Dýrin í Hálsaskógi í Elliðaárdalnum
Hvítasunnudaginn 27. maí mun Leikhópurinn Lotta frumsýna barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi í Elliðaárdalnum. Sýnt verður klukkan 14:00 og 16:00 en sýningin er um klukkutíma löng, full af glensi og fjöri. Þar sem sýnt er utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á og hlýja […]
Námskeið á Act Alone í sumar
Leiklistarhátíðin Act Alone verður haldin á Ísafirði í sumar eins og undanfarin ár. Að þessu sinni verða tvö námskeið í boði. Áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst, þar sem þátttakendafjöldi er takmarkaður.
Síðasta sýning á Einn koss enn …
Síðasta sýning Leikfélags Ölfussí Þorlákshöfn á Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan verður fimmtudagskvöldið 17. maí í Versölum. Sýningarnar hefjast klukkan 21.00. Hægt verður að panta léttan leikhúsmat í Ráðhúskaffi á undan sýningunum. Pantanir á mat og sýningu í síma 483-1700. Einnig hægt að hringja í síma 661-0501 til að panta […]
Gísli Súrsson til Albaníu
Kómedíuleikhúsinu á Ísafirði hefur verið boðið á einleikjahátíðina Albamono í Albaníu með leikinnn Gísli Súrsson. Um er að ræða alþjóðlega leiklistarhátíð sem fer fram dagana 21. – 25. maí næstkomandi. Albamono er haldin í Korce í Albaníu og er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin og verður Gísli Súrsson sýndur á íslensku. Þetta […]
Vinnusmiðja um þáttökuleikhús
Næstkomandi þriðjudag, 15. maí verður síðasta vinnusmiðja fræðsludeildar Þjóðleikhússins og FLÍSS – Félags um leiklist í skólastarfi í vetur. Að þessu sinni kynnumst við aðferðum þátttökuleikhúss (Forum theatre). Þessar aðferðir hafa lengi verið vinsælar meðal leiklistarkennara, enda bjóða þær upp á frábæra leið til þess að takast á við erfið viðfangsefni með nemendum auk þess að […]
Gyðjan í vélinni
Í vor mun Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur leiða sýningu um borð í elsta skipi Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Óðinn fær þá nýtt yfirbragð, þar sem ímyndunaraflið fær að flæða um króka og kima. Skipið er míkrókosmos. Sér heimur. Áhorfendur ferðast utan frá og inn; ofan frá og niður. Með því að stíga um borð er komið inn í nýjan […]
Leikfélag Fljótsdalshéraðs í Þjóðleikhúsinu 7. júní
Sýning Leikfélags Fljótsdalshéraðs, Listin að lifa, eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar var valin athyglisverðasta áhugasýning leikársins sem brátt er á enda. Samkvæmt venju er aðstandendum boðið að sýna verkið í Þjóðleikhúsinu og verður sýnt í Kúlunni 7. júní næstkomandi kl. 20.00. Gert er ráð fyrir aukasýningu þann 8. ef það verður […]
