Leiklistarskólinn
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga hefur starfað í núverandi mynd síðan vorið 1997. Árlega síðan hefur skólinn starfað í 9 daga á ári, venjulega í júní og hefur verið boðið upp á mikinn fjölda námskeiða sem sótt hafa verið af hátt á níunda hundrað nemendum. Starfsárið 2026 Starfstími skólans á þessu ári er frá 20. til 28. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði. Í boði verða 4 námskeið; Leiklist I í umsjón Ágústu Skúladóttur, Sérnámskeið í leikritun í umsjón Karls Ágústs Úlfssonar, Improv-námskeið sem Gríma Kristjánsdóttir stýrir og Complete Vocal Technique í umsjón Þórhildar Örvarsdóttur. Starfsárið 2025 Starfstími skólans...
Read More


