Kontrabassinn
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir einleikinn Kontrabassann eftir Patrick Süskind í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og Kjartans Óskarssonar í leikstjórn Gunnars B. Gunnarssonar. Greinarhöfundur tók hús á þeim Gunnari B. Guðmundssyni leikstjóra og Halldóri Magnússyni stórleikara eitt síðkvöld í nýliðinni viku þar sem þeir voru við æfingar á Kontrabassanum eftir Patrick Süskind sem Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi síðastliðinn laugardag. Þeir fengust með lagni til þess að setjast niður og svara nokkrum spurningum yfir kaffibolla. Mín fyrsta spurning er hvað hefði komið til að þeir völdu að setja upp Kontrabassann. Gunnar er fljótur til svars enda ræðinn með afbrigðum. „Tja, Tolli kom nú eiginlega fyrst til mín með hugmyndina og spurði hvort ég hefði áhuga. Hann hafði gengið með þetta í maganum í dálítinn tíma. Þetta var búið að vera draumur hjá mér í mörg ár svo hann kom þægilega aftan að mér með þetta. Ég er mikill aðdáandi Suskind, hef lesið öll verkin hans, sem reyndar er frekar auðvelt því verkin eru nú heldur fá“. Svo glotta þeir báðir í kampinn. En hvað skyldi það hafa verið í verkum Suskind sem höfðaði til þeirra? Jú, þau fjalla öll um einmanaleika, vonir og þrár. Nú er sem undirritaður heyri í kátu fjallastelpunum í dömubinda auglýsingunum koma valhoppandi hönd í hönd yfir engjarnar. „Þetta eru allt helvítis aumingjar, vælukjóar og kellingar“. Það er bassaleikarinn sjálfur sem rífur plötuna af fóninum og rekur...
Read More


