Author: lensherra

Maríubjallan frumsýnd hjá LA

Fimmtudaginn 16. febrúar verður leikritið Maríubjallan frumsýnt í Rýminu, nýju leikhúsi Leikfélags Akureyrar. Maríubjallan er kraftmikið og magnað nútímaverk eftir Vassily Sigarev. Leikritið er sýnt í Rýminu sem er nýtt leikhús Leikfélags Akureyrar sem kemur til viðbótar við starfsemi leikhússins í Samkomuhúsinu.  Rýmið, sem er til húsa að Hafnarstræti 73, er svartur kassi og þar er hægt að staðsetja uppsetningar á ólíka vegu.   Dima er 19 ára. Hann býr í blokk við hliðina á kirkjugarðinum, þaðan sem hann stelur legsteinum og selur. Á morgun hefur hann herþjónustu en í kvöld heldur hann vinum sínum kveðjupartý. Þangað koma vinir hans Slavik og Arkasha auk stúlknanna Leru og Júlkua. Á einu kvöldi fáum við magnaða innsýn í líf persónanna, kynnumst sorgum þeirra og þrám. Í ömurlegum aðstæðum er að finna allt litróf mannlegra tilfinninga og hver um sig hefur fundið sína leið til að lifa af. Vassily Sigarev er talinn eitt fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar í Evrópu og hefur hlotið fjölda verðlauna á síðastliðnum misserum.  Meðal annarra verka hans eru Plasticine og Svört mjólk sem bæði voru frumsýnd í Royal Court leikhúsinu í London. Það síðastnefnda var einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir skömmu. Árni Bergmann þýddi verkið úr rússnesku en Jón Páll Eyjólfsson er leikstjóri sýningarinnar. Hann var tilnefndur til menningarverðlauna DV í fyrra fyrir leikstjórn og gagnrýnandi Morgunblaðsins útnefndi hann „mann ársins í íslensku leikhúsi”. Maríubjallan er önnur uppsetning...

Read More

Glæpir og góðverk

Nú eru að hefjast sýningar hjá leikfélaginu Snúður og Snælda á leikritinu „Glæpir og Góðverk” sem er gamansamur krimmi. Leikritið er byggt á verki Anton Delmer, Don´t utter a note, þýtt og staðfært af Sigrúnu Valbergsdóttur. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. Frumsýnt verður sunnudaginn 12. feb. kl. 14.00.  Sýningar verða alla sunnudaga og miðvikudaga kl. 14.00 í...

Read More

Stuttverkahátíðin Margt smátt – Opið fyrir umsóknir

Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu 5. maí 2006 í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006. Hátíðin er opin öllum aðildarfélögum Bandalags íslenskra leikfélaga. Umsóknareyðublöð eru nú tiltæk hér vefnum. Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu 5. maí 2006 í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006. Sækja þarf um fyrir 1. apríl á umsóknareyðublöðum sem nálgast má með því að smella á Margt smátt grímuna hér til hægri. Þann 5. apríl verður svo opinberað hvaða...

Read More

Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í Borgarleikhúsinu

Leikritið um Ronju Ræningjadóttur verður frumsýnt á Stóra sviði  Borgarleikhússins næstkomandi sunnudag, 12. febrúar.  Sagan um Ronju er eftir Astrid Lindgren og segir frá ræningjadótturinni sem býr með foreldrum sínum og ræningjahópi í Matthíasarskógi. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir, sem fór með hlutverk Ronju þegar leikritið var síðast sýnt í Borgarleikhúsinu, fyrir tólf árum síðan. Í skóginum kynnist Ronja Birki, syni annars ræningjaforingja og erkióvinar Matthíasar, og með þeim tekst djúp vinátta, sem fordæmd er af foreldrum þeirra. Saman flýja þau því að heiman, hafast við í Bjarnarhelli og glíma við rassálfa, grádverga, skógarnornir og aðrar furðuverur. Þetta er saga um vináttu og hugrekki en þó fyrst og fremst kærleika.   Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikur Ronju og Friðrik Friðriksson leikur vin hennar Birki Borkason. Foreldra Ronju, þau Matthías og Lovísu, leika Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og Sóley Elíasdóttir. Eggert Þorleifsson leikur öldunginn Skalla-Pétur. Með önnur hlutverk fara: Björn Ingi Hilmarsson, Davíð Guðbrandsson, Ellert A. Ingimundarson, Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Hildigunnur Þráinsdóttir, Hinrik Þór Svavarsson, Kjartan Bjargmundsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Orri Huginn Ágústsson, Tryggvi Gunnarsson, Valur Freyr Einarsson og Þór Tulinius. Auk þeirra taka 10 börn þátt í sýningunni sem skipta með sér 5 hlutverkum, einnig koma við sögu fjöldinn allur af rassálfum, skógarnornum og öðrum furðuverum. Tónlist er fyrirferðamikil í leikritinu, og hún er eftir danska tónlistarmanninn Sebastian, en tónlistarstjóri er Karl Olgeirsson. Leikmynd og búninga hannar Sigurjón Jóhannsson og...

Read More

Æfingar hafnar á Átta konum

Í Þjóðleikhúsinu hófust æfingar nú í vikunni á leikritinu Átta konur eftir Robert Thomas. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en verkið verður frumsýnt á Stóra sviðinu í lok mars. Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú áttunda bætist í hópinn getur allt gerst! Glæpsamlegur gamanleikur með söngvum og dansi! Þegar leikritið Átta konur eftir Robert Thomas (1927-1989) var frumflutt í París árið 1961 hlaut það leiklistarverðlaunin Prix du Quai des Orfèvres og var leikið við miklar vinsældir. Franski leikstjórinn François Ozon vann geysivinsæla kvikmyndagerð verksins árið 2002, þar sem margar af fremstu leikkonum Frakklands fóru á kostum. Meðal annarra frægra verka Roberts Thomas eru Piège pour un homme seul og La Perruche et le poulet, en hann var einkum þekktur fyrir það að tvinna saman með góðum árangri form sakamálaleikrita og léttra gamanleikja. Robert Thomas starfaði einnig sem leikari, kvikmyndaleikstjóri og leikhússtjóri. Sævar Sigurgeirsson aðlagar verkið íslenskum aðstæðum og semur söngtexta. Sævar hefur samið fjölda leikverka fyrir áhugaleikhópa, en einnig verk fyrir Hafnarfjarðarleikhúsið, Ríkisútvarpið og Leikfélag Akureyrar. Ásamt þeim Ármanni Guðmundssyni og Þorgeiri Tryggvasyni samdi hann handrit barnasýningar Þjóðleikhússins, Klaufar og kóngsdætur, sem frumsýnt var á síðasta leikári. Edda Heiðrún Backman hefur leikið fjölmörg hlutverk bæði á sviði og í...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert