Author: lensherra

Sýningum að ljúka í Kópavogi

Nú eru einungis tvær sýningar eftir á leikritinu ÞAÐ GRÆR ÁÐUR EN ÞÚ GIFTIR ÞIG í leikstjórn Sigrúnar Sólar Næstsíðasta sýning er á fimmtudaginn 1. desember og síðasta sýning er sunnudaginn 4. desember. Sýningar hefjast kl. 20:00.  Miðapantanir í síma 554 1985 og á midasala@kopleik.is Frekari upplýsingar er a finna á heimasíðu félagsins. Leikhópurinn: Ástvaldur – Guðmundur L. Þorvaldsson Dúna – Bylgja Ægisdóttir Elli – Valdimar G. Þórarinsson Grétar – Sigsteinn Sigurbergsson Lúðvík – Fannar Víðir Haraldsson Pétur – Gísli Björn Heimisson Símon – Arnar Ingvarsson Vala – Elín Björg Pétursdóttir Trúbador – Hilmar Garðarsson Verkið er spunaverk, byggt á Kirsuberjagarði Tsjekhovs. Leikhópurinn vinnur textann sinn sjálfur, gegnum leik með senur, þar sem alltaf er leitað að vendingum. Ekkert handrit er til, unnið er útfrá samkomulagi leikaranna um það hver er aðalvending hverrar...

Read More

Hugarflug á Selfossi

Þá er Leikfélag Selfoss að hefja enn eitt leikár sitt í Leikhúsinu gamla við Sigtún. Í haust var auglýst eftir þátttakendum í svonefndu Hugarflugi en þá er unnin sýning úr þeim hugmyndum sem fram koma á fyrstu vinnufundum með leikhópnum. Umsjón með þessari grasrótarvinnu hafa þær Íris Magnúsdóttir og GuðfinnaGunnarsdóttir haft mest á sinni könnu. Nú er Hugarflugið að komast á fjalirnar og verður sýnt í Leikhúsinu við Sigtún næst komandi sunnudag, 4. desember, fyrst klukkan 15 og kl. 18. Aðeins þessar tvær sýningar. Aðgangseyri er mjög í hóf stillt, aðeins krónur 500 og dálitlar veitingar þar innifaldar. Sem sagt upplagt að fá sér eins konar bland í poka hjá Leikfélagi Selfoss á öðrum sunnudegi aðventunnar. Verið...

Read More

Brot af því besta

Upplestur og lifandi tónlist fimmtudagskvöldin 1.og 8. desember klukkan 20 í anddyri Borgarleikhússins. Fimmtudaginn 1.des. lesa eftirfarandi rithöfundar upp úr bókum sínum: Einar Kárason, Gerður Kristný, Kristjón Guðjónsson, Sjón, Steinunn Sigurðardóttir, Yrsa Sigurðardóttir Seinna kvöldið, fimmtudaginn 8. des. kl. 20 lesa rithöfundarnir: Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason, Hreinn Vilhjálmsson, Ingibjörg Hjartardóttir, Ólafur Gunnarsson og Þórarinn Eldjárn úr bókum sínum. Boðið verður upp á léttan jóladjass og sannkallaða jólastemningu. Tónlistarmennirnir Ólafur Jónsson á tenórsaxófón og Jón Páll Bjarnason á gítar leika bæði kvöldin. Eymundsson selur bækur höfundanna á góðum kjörum. Ekki missa af frábærri kvöldstund í anddyri Borgarleikhússins. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.   Hinn árlegi upplestur “Brot af því besta” er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Borgarbókasafns-Kringlusafns, Kringlunnar og...

Read More

Ævintýrið um Augastein

Leikhópurinn Á senunni sýnir hina margrómuðu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson í Samkomuhúsinu á Akureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir jólin.  Sýningar verða á Akureyri dagana 10. – 12. desember og í Reykjavík dagana 14. – 18. desember.  Sýningar á Akureyri eru í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.  Barnabókin Ævintýrið um Augastein fékk glimrandi viðtökur fyrir jólin 2003 og seldist í þúsundum eintaka.  Útgefandi var Mál og menning. Leikhópurinn Á senunni sýnir hina margrómuðu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson í Samkomuhúsinu á Akureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir jólin.  Sýningar verða á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:00, Saturday - Sunday: Closed

Vörur