Author: lensherra

Blessað barnalán í Biskupstungum

Föstudaginn 24. febrúar frumsýnir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna leikritið  Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í Aratungu. Frumsýningin hefst klukkan 21:00. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Blessað barnalán segir frá Þorgerði, eldri konu austur á fjörðum, sem ofbýður svo hve uppkomin og brotflutt börn hennar sína henni mikið afskiptaleysi að hún lætur senda þeim skeyti um að hún sé látin. Það er eins og við manninn mælt, afkomendurnir eru mættir til að innheimta arfinn… Önnur sýning 25. febrúar og þriðja sýning 28. febrúar.  Upplýsingar í síma 862 6444 og 891 6807.  Á undan leiksýningum er boðið upp á leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti,. Borðapantanir í síma 486-1310 og 891 6807.  Húsið opnar kl. 19:00 og sýningin hefst kl....

Read More

Sakamál á svið!

Borgarleikhúsið efnir til samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit. Opinn umræðufundur, um íslensk sakamál og íslenska dægurmenningu, verður haldin í tengslum við Samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit sem Borgarleikhúsið stendur fyrir um þessar mundir. Fundurinn verður haldinn Þriðjudagskvöld 28.febrúar kl.20 í forsal Borgarleikhússins og er opinn öllum. Af hverju eru sakamál svona vinsæl á íslandi í dag? Eru íslensk sakamál frábrugðin sakamálum annarra landa? Eiga sakamál erindi upp á íslensk leiksvið? Þetta eru nokkrar spurningar sem Davíð Þór Jónsson, þýðandi, Katrín Jakobsdóttir, íslenskufræðingur, Ævar Örn Jósepsson, sakamálahöfundur og Anna Rögnvaldsdóttir kvikmyndaleikstjóri, munu svara og velta fyrir sér ásamt fundargestum. Samkeppnin er öllum opin og eiga drög að sakamálaleikverki að berast Borgarleikhúsinu fyrir 31.maí....

Read More

Kjallarakvöld með Kurt Weill

Á sunnudagskvöldið, lokakvöldi Vetrarhátíðar í Reykjavík, verður boðið upp á dagskrá í Leikhúskjallaranum þar sem tónlist Kurt Weill verður í fyrirrúmi. Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir Túskildingsóperuna eftir þá Bertolt Brecht og Kurt Weill. Tónlistin í verkinu er leikshúsgestum og tónlistarunnendum að góðu kunn. Í Túskildingsóperunni birtast öll helstu höfundareinkenni Kurts Weills. Þótt sterkra áhrifa gæti frá barokktónlist, tónlist klassíska tímans, vaudeville- eða revíutónlist, alþýðusöngvum og jazzmúsík er tónlistin öll snilldarlega meitluð í mjög svo persónulegan stíl hans sjálfs. Tónlist Weills er hrjúf og gróf, en líka einlæg og falleg; hún er melódísk þótt hljómurinn sé ómstríður og djarfur; hún er framsækin og margslungin, en þó oftast alþýðleg og aðgengileg. Útsetningar hans eru einstakar. Grípandi laglínur taka flugið yfir sérkennilegum hljómasamböndum og vísvitandi “fölskum” nótum, og bassalínan hljómar stundum eins og hún sé tveimur töktum á undan eða eftir áætlun. Jóhann G. Jóhannsson, tónlistarstjóri Þjóðleikhússins og hljómsveitarstjóri Túskildingsóperunnar, mun fjalla um tónlist Kurt Weill ásamt Agli Ólafssyni. Þá munu Atli Rafn Sigurðarson, Egill Ólafsson, Halla Vilhjálmsdóttir og Selma Björnsdóttir flytja lög eftir Weill við undirleik Jóhanns G. Jóhannssonar. Dagskráin verður flutt tvisvar sinnum, kl. 21:00 og kl. 22:30. Aðgangur er...

Read More

Kardemommubærinn frumsýndur í Freyvangi

Þann 25. febrúar næstkomandi verður frumsýnt í Freyvangi leikverkið Kardemommubærinn. Þetta þekkta leikrit kannast flestir ef ekki allir við og persónurnar, er Torbjörn Egner skapaði af sinni alkunnu snilld, eru góðkunningjar barna jafnt sem fullorðinna um heim allan. Mikill metnaður hefur verið lagður í sýninguna.  Svo umfangsmikil er hún að saumar og smíðar voru færðar út fyrir Freyvang vegna umfangs.  Hefur því verið unnið að sýningunni á þremur stöðum í sveitinni.  Sviðsmynd, hönnuð af Hallmundi Kristinssyni, er sennilega sú viðamesta sem sett hefur verið upp í Freyvangi. Smíðar, undir leiðsögn Halldórs Sigurgeirssonar, tóku rúman mánuð og þurfti tug fílefldra karlmanna bara til þess að koma turni Tobíasar inn í húsið. Margir gamalgrónir Freyvangsleikarar vekja persónurnar til lífsins.  Ræningjana túlka Stefán Guðlaugsson, sem leikið hefur í fjöldamörgum sýningum í Freyvangi, Ingólfur Þórsson, sem lengi hefur verið viðloðinn áhugaleikhús víðs vegar um landið, og Jónsteinn Aðalsteinsson, sem er að leika í Kardemommubænum í þriðja sinn á ferlinum. Með hlutverk Soffíu frænku fer Hjördís Pálmadóttir, þess má geta að við undirbúning sýningarinnar var sérstaklega leitað til hennar enda þótti engin önnur koma til greina í hlutverkið. Í hlutverki Bastíans er Guðjón Ólafsson, en hann leikstýrði einmitt Kardemommubænum hjá Litla leikklúbbnum á Ísafirði á sínum tíma. Margir leikarar eru þó af yngri kynslóðinni og margt upprennandi leikhúsfólk þar á ferð. Jóhann Ingólfsson og Gunnar Örn Stephensen, sem léku báðir stór hlutverk í Ólíver,...

Read More

10 aukasýningar á Forðist okkur

Hin umtalaða leiksýning Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson verður tekin til sýningar að nýju á Litla sviði Borgarleikhússins í mars. Sýningin fékk afar góðar viðtökur í haust jafnt hjá gagnrýnendum sem og almenningi og komust færri að en vildu.  Forðist okkur er samstarfsverkefni CommonNonsense og Nemendaleikhússins.   Hugmyndaheimur verksins er sprottinn upp úr verkum Hugleiks myndasögubókunum Elskið okkur , Drepið okkur og Ríðið okkur. Sögur Hugleiks er skemmtilegar, kaldhæðnar, grófar, ljótar, fallegar, ósmekklegar, gróteskar og rómantískar. Það rúmast allt í þessum heimi. Hver saga lætur ekki mikið yfir sér. Ein teikning með örlittlum texta. Í einfaldleika sínum tekst Hugleik á skondinn og áhrifamikinn hátt að beina sjónum okkar að margs skonar meinsemdum í samskiptum fólks, brengluðu gildismati, brengluðu siðferði og hættulegum félagslegum doða og afskiptaleysi. Sögur hans eru eins og ljósmynd úr lífi fólks og hann lætur okkur eftir að filla upp í götin. Forðist okkur er saga um nútímamanninn í sinni nöktustu mynd. Leikarar í sýningunni eru Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Víðir Guðmundsson, Valur Freyr Einarsson og Aðalheiður Halldórsdóttir Leikstjórar eru  Stefán Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir, Ilmur Stefánsdóttir hannaði leikmynd, tónlist og hljóðmynd gerði Davíð Þór Jónsson, lýsing  hannaði Egill Ingibergsson,  búninga hönnuðu Rannveig Kristjánsdóttir og Elsa María Blöndal. Aðeins er unnt að sýna 10 sýningar. Miðasala er hafin hjá miðasölu Borgarleikhússins í síma...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert