Author: lensherra

Æfingar hefjast hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Fyrsti samlestur á nýju barnaleikriti sem Leikfélag Hafnarfjarðar hyggst setja á fjalirnar í mars nk. verður haldinn í húsnæði Leikfélags Hafnarfjarðar, í gamla Lækjarskóla við Skólabraut í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. janúar kl. 20:00. Leikstjóri verksins er Ármann Guðmundsson. Mæting er öllum opinn og vill leikfélagið hvetja alla þá sem áhuga hafa á leiklist, tónlist, búningagerð, sviðsmyndasmíð eða góðum félagsskap að mæta og taka þátt í þessu ævintýri með okkur. Leikritið sem sett verður á svið er unnið upp úr barnabók eftir Ole Lund Kirkegaard og heitir á frummálinu Hodja fra Pjort. Bókin hefur verið komið út undir nafninu Hodja og Töfrateppið í  íslenskri þýðingu. Hér er um stórskemmtilegan efnivið að ræða og stefnir í hrífandi og skemmtilega...

Read More

Íslenska Óperan setur upp Öskubusku

Æfingar eru hafnar á Öskubusku eftir Rossini, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni 5. febrúar nk. Með aðalhlutverkin fara þau Sesselja Kristjánsdóttir, Garðar Thór Cortes, Bergþór Pálsson, Davíð Ólafsson, Hlín Pétursdóttir, Anna Margrét Óskarsdóttir og Einar Th. Guðmundsson. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, leikstjóri er Paul Suter, sviðs- og búningahönnuður er Season Chiu og lýsingu hannar Jóhann Bjarni Pálmason. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Öskubuska og Rossini eru meginviðfangsefni næsta námskeiðs sem Vinafélag Íslensku óperunnar og Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir í sameiningu og hefst 7. febrúar nk. Skráning á námskeiðið er hafin og er skráningarfrestur til og með 20. janúar. Þrjú fyrstu kvöld námskeiðsins verður fjallað um Rossini og Öskubusku og einstakir hlutar óperunnar teknir til nánari skoðunar, með hjálp tón- og mynddæma. Síðasta kvöldið verður farið á sýningu í Óperunni þar sem færi gefst á stuttu spjalli við nokkra af aðstandendum uppsetningarinnar. Kennari á námskeiðinu er Gunnsteinn Ólafsson...

Read More

Leiklistarspjallið opnað

Ákveðið hefur verið að opna Leiklistarspjallið að nýju óskráðum notendum. Þegar skipt var um vefumsjónarkerfi síðastliðið haust var ákveðið að krefjast skráningar notenda. Þessi breyting hefur því miður gert það að verkum að þátttaka í spjallinu hefur stórminnkað og því hefur eins og  áður er sagt, verið ákveðið að hafa það öllum opið. Eftir sem áður geta notendur nýtt sér kosti skráningar sem t.d. fela í sér að ný innlegg eru sérstaklega merkt og einnig er hægt að gerast áskrifandi að áhugaverðum þráðum.  Einnig virðist sem sumir notendur geri sér ekki grein fyrir ýmsum möguleikum sem í boði eru. Sem dæmi er hægt að skipta á milli þess að sýna spjallþræði annarsvegar sem tré og hinsvegar sem lista. Einnig má velja um að sýna elstu eða yngstu innlegg fyrst auk ýmissa annarra möguleika. Lesendur eru hvattir til að prófa sig áfram með þá möguleika sem í boði...

Read More

Tíu ára vampýruafmæli

Janúarverkefni Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum er gamanóperan Bíbí og blakan eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Verkið segir frá hinni ungu og fögru Bíbí sem bíður ein eftir að ástin sæki hana heim, en mál hennar vandast þegar tvo gesti ber að garði sömu nóttina: töfrandi en dularfullan rúmenskan nýbúa og ábúðarmikinn vampýruveiðara sem telur sig heldur en ekki vera kominn í feitt. Höfundarnir kjósa að kalla verkið "óperuþykkni", enda koma þar fyrir öll þau helstu atriði sem einkenna "alvöru" óperur, en á mun skemmri tíma en algengast er, sem ætti að henta sérlega vel tímabundnum nútímaáhorfendum. Bíbí og Blakan er langlífasta og víðförulasta sýning Hugleiks, og fagnar nú tíu ára afmæli sínu. Verkið var frumsýnt í Höfundasmiðju Leikfélags Reykjavíkur 1996, og seinna sama vor tekin til sýninga hjá Hugleik. Árið 2000 var sýningin fulltrúi Íslands á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Litháen og var í framhaldinu boðið á aðra hátíð í Rússlandi af fulltrúum rússneska áhugaleikhússambandsins sem heilluðust mjög af sýningunni. Erlendri sigurgöngu Bíbíar (hingað til a.m.k) lauk síðan í Rudolstadt í Þýskalandi, þangað sem henni var boðið af þýskum leiklistarforkólfum eftir sýninguna í Rússlandi. Verkið hefur tekið talsverðum breytingum í áranna rás, og hafa höfundar notað tækifærið í hvert sinn sem nýtt ferðalag var á döfinni að breyta og bæta. Leikarar að þessu sinni eru þau Einar Þór Einarsson, Björn Thorarensen, Hulda B. Hákonardóttir, Silja B. Huldudóttir,...

Read More

Sunnudagskvöld með Svövu

Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins, Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur, verða fimm Sunnudagskvöld með Svövu þar sem boðið verður upp á fyrirlestur, kvöldverð, leiksýningu og umræður. Þessi kvöld eru í samvinnu við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í kynjafræðum. Svava Jakobsdóttir hafði með skáldsögum sínum, smásögum og leikritum mikil áhrif á íslenskt menningarlíf og samfélag á ofanverðri tuttugustu öld, en með verkum sínum miðlaði hún meðal annars skarpri sýn á stöðu konunnar í samfélaginu. Með sýningunni Eldhús eftir máli heiðrar Þjóðleikhúsið minningu Svövu. Hún hefði orðið 75 ára í ár, en lést árið 2004. Sunnudagskvöld með Svövu verða sem fyrr segir fimm. Sunnudaginn 15. janúar heldur Kristín Ástgeirsdóttir, forstöðukona Rannsóknarstofu í kynjafræðum, fyrirlestur undir yfirskriftinni Svava og stjórnmálin, 22. janúar er komið að Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur rithöfundi en hennar erindi nefnist Svava og skáldskapurinn, María Kristjánsdóttir fjallar um Svövu og sviðslistirnar 29. janúar, 5. febrúar er röðin komin að Ármanni Jakobssyni bókmenntafræðingi en hann fjallar um Svövu og samtímann. Vigdís Finnbogadóttir verður með síðasta fyrirlesturinn í þessari röð 12. febrúar og ræðir um Skáldkonuna Svövu Jakobsdóttur. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 18:00, að þeim loknum er boðið upp á léttan kvöldverð fyrir leiksýninguna og í lok hennar umræður. Sunnudagskvöld með Svövu kosta 4.500 krónur. Leikarar í Eldhúsi eftir máli eru Aino Freyja Järvelä, Kjartan Guðjónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, María Pálsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 9:00 — 13:00, Saturday - Sunday: Closed

Vörur