Author: lensherra

Dúrra fær Þorrann

Á Þorrablóti Egilstaðabúa þann 20. janúar sl. veitti Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, Kristrúnu „Dúrru“ Jónsdóttur Þorrann sem er farandgripur sem ár hvert er veittur einhverjum sem unnið hefur samfélaginu ómælt gagn. Þetta er í 12. skipti sem Þorrinn er veittur. Viðurkenninguna fékk Dúrra að sjálfsögðu fyrir störf sín með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs en hún hefur undanfarin 38 ár verið ein af driffjöðrum þess, hefur leikið um 20 hlutverk, verið tvisvar formaður og gert allt það sem hægt er að gera með einu leikfélagi. Bandalagið óskar Dúrru innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu. Á myndinni sést Dúrra leggja rækt við ungviðið í LF. Tekið skal fram að þetta er ekki...

Read More

Aukasýning á Hinni endanlegu hamingju

Leikfélag Hafnarfjarðar gefur nú einn lokamöguleika á að sjá Hina endanlegu hamingju eftir Lárus Húnfjörð með því að hafa aukasýningu næstkomandi sunnudag, 29. janúar, kl. 20:00 í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Miðaverð er kr. 1000,- en miðapantanir eru í síma 848 0475. „Hin endanlega hamingja“ er annað verk Lárusar Húnfjörð sem Leikfélag Hafnarfjarðar tekur til sýninga. „Þið eruð hérna“ sem félagið sýndi sumarið 2003 er af mörgum talið eitt athyglisverðasta verk sem hefur verið sýnt í promenade stíl hér á landi um árabil. Leikendur í sýningunni eru 13 talsins. Margir þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á fjölunum en aðrir hafa mikla reynslu að baki. Hönnun lýsingar er í höndum Kjartans Þórissonar, Kristín Arna Sigurðardóttir hannar leikmynd og Dýrleif Jónsdóttir hefur yfirumsjón með búningagerð. Leikritið verður sýnt í húsakynnum félagsins í gamla Lækjarskólanum. Sýningin henti ekki fyrir fólk með innilokunarkennd eða trúarbragðafælni.   Það er víst að áhorfendum var komið á óvart á frumsýningunni og alveg áreiðanlegt að leiksýning þeirra á fáa sína líka. Lárus Vilhjálmsson er vaxandi leikskáld og leikstjóri með næmt auga fyrir áhrifamætti leikhússins og spennandi að fá meira að sjá frá honum í framtíðinni. – Hrund Ólafsdóttir, Morgunblaðið.   Ytri umgjörð er ágæt og leikmyndin er mjög vel heppnuð og skapar skemmtilega stemmningu fyrir sýninguna. Hinni endanlegu hamingju tekst að viðhalda áhuga áhorfenda enda kraumar undir einhver spenna sem heldur athyglinni allan tímann.  – Hörður Sigurðarson,...

Read More

Naglinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 21. janúar verður Naglinn, broslegur harmleikur um karlmennskuna, eftir Jón Gnarr verður frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð en leikendur eru Gunnar Sigurðsson og Jón Stefán Kristjánsson. Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins 540 gólf og Borgarleikhússins. Nagflinn er saga manns sem stendur á þeim mótum í lífi sínu að honum finnst allt hafa verið til einskis þrátt fyrir alla vinnuna, viljann til að standa sig, vinna meir, vera meira heima, vera meira með börnunum, smíða, bora, leggja flísar, vera harður, vinna meira, tala meira, vera meira heima, eyða meiri tíma með fjölskyldunni, vinna meira, stækka við húsnæðið, meira pláss fyrir börnin, smíða, bora, leggja flísar, skilja, vinna meira, meðlagsgreiðandi, skifta eignum, hugsa um börnin, vera töff, helgarpabbi, sjarmur, gifta sig aftur, smíða, bora, leggja flísar, vinna meira, skaffa vel, vera meira heima, meira með börnunum, vera harður, ekkert væl vera nagli, tala meira, vera meira með fjölskylduni, skilja, kominn með kút, fara í ræktina, vinna meira, meiri meðlög, skipta eignum, hugsa um börnin, töffari, einhleypur, sambúð, bora, leggja flísar, smíða, vinna meira, gefa meira af sér í sambúðina, vera meira með börnunum, vinna meira, skaffa vel, magaspeglun, vera mýkri, vera harður, ekkert væl, sálfræðingur, vinna meira, bora, smíða, leggja flísar, skaffa vel, hjartsláttartruflanir, ekkert væl, hjartalínurit, vera harður, vinna meira, blóðþynningarlyf, skaffa, meiri tíma með fjölskyldunni, ristilspeglun… Hvað er aumingjanlegra en maður sem situr á klósetti...

Read More

Æfingar hafnar á Þuríði og Kambsráninu

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á sögulegu leikriti, „Þuríður og Kambsránið“, eftir Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Leikritið segir frá hinu fræga Kambsráni í Flóa árið 1827 og hvernig Þuríður formaður Einarsdóttir átti sinn þátt í rannsókn málsins. Og eins og margir vita þá var hún Þuríður þessi mikil baráttukona í hörðum karlaheimi. Stefnt er á að frumsýna í byrjun mars. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigurgeir semur fyrir leikfélagið, fyrst árið 1994 þegar hann samdi gamanleikinn „Leikið lausum hala“ og svo árið 2001 kom hann með „Á Suðurlandsvaktinni“ Sigurgeir á langa sögu að baki hjá leikfélaginu, fyrir utan að hafa samið fyrir leikfélagið, þá hefur hann margoft stigið á svið, verið í stjórn og er núverandi formaður leikfélagsins. Leikstjóri „Þuríðar og Kambsránsins“ er Jón Stefán Kristjánsson og er þetta í þriðja sinn sem hann kemur með krafta sína til leikfélagsins en hann leikstýrði „Með vífið í lúkunum“ árið 1999 og einnig „Á Suðurlandsvaktinni“. Leikarar í sýningunni eru á milli 14 og 18 auk þeirra sem leggja sýningunni lið bakvið...

Read More

Æfingar hafnar á Maríubjöllunni

Hjá Leikfélagi Akureyrar eru æfingar hafnar á Maríubjöllunni eftir Vassily Sigarev. Hér er um að ræða kraftmikið og átakanlegt nútímaverk sem vakið hefur mikla athygli þar sem það hefur verið sýnt. Leiksýningin verður fyrsta uppsetningin í nýju leikrými Leikfélags Akureyrar, sem enn hefur ekki hlotið nafn. Frumsýning verður 17. febrúar.  Maríubjallan gerist á einu kvöldi. Við fáum magnaða innsýn í líf persónanna, kynnumst sorgum þeirra og þrám. Í ömurlegum aðstæðum er að finna allt litróf mannlegra tilfinninga og hver um sig hefur fundið sína leið til að lifa af. Dima er 19 ára. Hann býr í blokk við hliðina á kirkjugarðinum, þaðan sem hann stelur legsteinum og selur. Á morgun hefur hann herþjónustu en í kvöld heldur hann vinum sínum kveðjupartý. Þangað koma vinir hans Slavik og Arkasha auk stúlknanna Leru og Yulka. Vassily Sigarev er talinn eitt fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar í Evrópu og hefur hlotið fjölda verðlauna á síðastliðnum misserum, bæði í heimalandi sínu, Rússlandi sem og öðrum löndum. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson en hann var tilnefndur til menningarverðlauna DV í fyrra fyrir leikstjórn og gagnrýnandi Morgunblaðsins útnefndi hann „mann ársins í íslensku leikhúsi”. Hann setti upp leikritið Frelsi í Þjóðleikhúsinu í haust. Þýðandi er Árni Bergmann, leikmynd og búninga hannar Halla Gunnarsdóttir. Hallur Ingólfsson semur tónlist og hljóðmynd verksins og lýsing er í höndum Björns Bergsteins Guðmundssonar. Leikarar eru Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Esther Thalía Casey,...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 9:00 — 13:00, Saturday - Sunday: Closed

Vörur