Öskubuska frumsýnd 5. febrúar
Íslenska Óperan frumsýnir sunnudaginn 5. febrúar Öskubusku eftir ítalska tónskáldið Gioacchino Rossini við texta eftir Jacopo Ferretti. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Leikstjóri er Paul Suter og hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky. Söguþráður óperunnar byggir á ævintýrinu velþekkta um Öskubusku. Í óperunni er það reyndar vondi stjúpfaðirinn Don Magnifico og hégómlegu dætur hans tvær, Clorinda og Tisbe, sem gera Öskubusku lífið leitt. Það er svo heimspekingurinn Alidoro sem kemur í stað álfkonunnar góðu og sér til þess að Öskubuska komist á dansleikinn í höllinni. Eins og í mörgum góðum óperum eru það dulargervin sem gegna mikilvægu hlutverki í óperunni Öskubusku. Prinsinn Ramiro og þjónninn Dandini hafa skipti á hlutverkum. Stjúpsysturnar Clorinda og Tisbe eru því uppteknar af því að koma sér í mjúkinn hjá þjóninum, sem er dulbúinn sem prinsinn, á meðan Öskubuska og hinn raunverulegi prins, dulbúinn sem þjónn, fella hugi saman. Á dansleiknum í höllinni lætur Öskubuska prinsinn fá annað af tveimur armböndum sínum og segir honum að leita sig uppi og ef hann elski sig enn, þá verði hún hans. Þegar prinsinn finnur Öskubusku kemst upp hver er hinn sanni prins og verða Don Magnifico og dætur hans æf af reiði, þegar hann tilkynnir að Öskubuska sé hans útvalda. Þau vísa henni á bug þegar hún reynir að...
Read More