Author: lensherra

Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Anímanína

Miðvikudaginn 5. apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Anímanína. Verkið er samið af meðlimum Stúdentaleikhússins og Víkingi Kristjánsssyni, sem jafnframt leikstýrir. Verkið er allt það sem leikhús hefur upp á að bjóða. Söngur og dans, dramatík og furðulegheit. Sýnt er í Loftkastalanum og hefjast sýningar kl 20:00 Stúdentaleikhúsið hefur jafnframt opnað nýja heimasíðu á www.studentaleikhusid.is, og er þar hægt að nálgast allar upplýsingar um sýningartíma á Animanina, auk þess sem hægt er að sjá meðlimi og myndir frá sýningum og fleiru. Einnig er verið er að setja upp safn með upplýsingum um eldri leikrit Stúdentaleikhússins, auk þess sem fleira mun bætast á síðuna eftir því sem lengra líður. Einnig hefur verið hannað nýtt merki Stúdentaleikhússins, og er það bæði klassískt og nýstárlegt, eins og leikhúsið...

Read More

Hvað kemur þetta okkur við?

– Um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál – Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir umræðufundi í Leikhúskjallaranum laugardaginn 1. apríl kl. 15:00.   Leiklistarsamband Íslands hefur undanfarin ár efnt til umræðufunda um leiklist og leikhússtarfsemi. Í þetta sinn eru umræðufundirnir haldnir í samstarfi við fræðsludeild Þjóðleikhússins. Yfirskrift fundanna er ,,Hvað kemur þetta okkur við?” og efni þeirra er tekið úr fréttum samfélagsins en ekki beint úr leikhúsinu eins og áður hefur verið gert. Á laugardaginn munu Andri Snær Magnason, rithöfundur, Árni Bergmann, rithöfundur og Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikstjóri fjalla um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál.   Markmiðið með umræðufundunum er að fjalla um þær fréttir sem efst eru á baugi í samfélaginu út frá pólitískum og siðferðislegum forsendum. Hefur leikhúsið eitthvað að segja? Ber okkur skylda til að fjalla um málefni líðandi stundar? Hvernig getur leikhúsið tekið á vandamálum eða fréttum samtímans með listrænum hætti?   Nánari upplýsingar veitir Erling Jóhannesson frá Leiklistarsambandi Íslands (erlingj@vortex.is) í síma 891 6330 eða Ingibjörg Þórisdóttir, verkefnisstjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins (ith@leikhusid.is) í síma 585...

Read More

Tveir tvöfaldir frumsýnt hjá Leikfélagi Húsavíkur

Laugardaginn 1. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur farsann Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney. Þýðingu verksins gerði Árni Ibsen en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Sýnt er í Samkomuhúsinu á Húsavík og hefst frumsýning kl. 15:00. Tveir tvöfaldir var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1998 og naut talsverðra vinsælda en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt áhugaleikfélag setur leikritið upp. Langt er um liðið síðan Leikfélag Húsavíkur setti síðast upp farsa og þótt mörgum kominn tími til. Tveir tvöfaldir segir frá stjórnmálamanni nokkrum og aðstoðarmanni hans. Þeir skrá sig inn á hótel þar sem stjórnmálamaðurinn hyggst eiga huggulega nótt með viðhaldi sínu en þegar eiginkona hans mætir á svæðið lendir það á aðstoðarmanninum að bjarga málunum. Ray Cooney er einn þekktasti farsahöfundur samtímans, skrifaði m.a. hið geysivinæla verk Með vífið í lúkunum og nú standa yfir í Borgarleikhúsinu æfingar á farsa eftir hann sem hlotið hefur nafnið Viltu finna milljón? Þetta er í fimmta skipti sem María Sigurðardóttir leikstýrir hjá leikfélaginu, áður hefur hún leikstýrt Ofurefli (86-87), Gaukshreiðrinu (91-92), Tobacco Road (94-95) og Þjóni í súpunni (03-04). Með helstu hlutverk í Tveimur tvöföldum fara Hjálmar Bogi Hafliðason, Guðný Þorgeirsdóttir og Þorkell Björnsson. Leikmynd hönnuðu Sveinbjörn Magnússon og Sigurður Sigurðsson í samvinnu við leikstjóra og um lýsingu sáu Jón Arnkelsson og Ingvar Erlingsson. Þar sem ekki reynist unnt að sýna nema í apríl verður verkið sýnt óvenju þétt og ekki eftir neinu að...

Read More

Frumsýning á Átta konum í Þjóðleikhúsinu

Þann 31. mars verður gamanleikurinn Átta konur eftir Robert Thomas, í þýðingu og aðlögun Sævars Sigurgeirssonar, frumsýndur  á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en um tónlistarstjórn sér Samúel J. Samúelsson. Verkið er “glæpsamlegur gamanleikur”, þar sem átta leikkonur leiða okkur inn í kvennaheim, fullan af óvæntum atburðum, ógnum og gríni. Þeim til fulltingis verður hinn þekkti látbragðsleikari Kristján Ingimarsson, sem kemur sérstaklega frá Danmörku til að taka þátt í sýningunni. Áhorfendur mega eiga von á því að leikkonurnar bresti í dans og söng þegar minnst varir. Átta villtar konur og einn látbragðsleikari fara hamförum á Stóra sviðinu í vor! Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú áttunda bætist í hópinn getur allt gerst! Glæpsamlegur gamanleikur með söngvum og dansi! Franska leikskáldið Robert Thomas (1927-1989) var einkum þekktur fyrir það að tvinna saman með góðum árangri form sakamálaleikrita og léttra gamanleikja. Þegar leikritið Átta konur var sýnt í París árið 1961 hlaut það leiklistarverðlaunin Prix du Quai des Orfèvres og var leikið við miklar vinsældir. Franski leikstjórinn François Ozon vann geysivinsæla kvikmyndagerð verksins árið 2002, þar sem margar af fremstu leikkonum Frakklands fóru á kostum. Sævar Sigurgeirsson hefur unnið aðlögun verksins og samið nýja söngtexta. Sævar hefur samið...

Read More

Leikfélag Selfoss með heiðurssýningu

Þann 2. apríl nk. verður sérstök heiðurssýning á Þuríði og Kambsráninu hjá Leikfélagi Selfoss til að heiðra minningu Ólafar Österby (fædd 1. apríl 1906, lést 19. janúar 1995). Ólöf var í fyrstu stjórn leikfélagsins árið 1958 og ári seinna var hún kosinn sem formaður og gegndi því starfi í eitt ár. Hún kom margoft fram með leikfélaginu, síðast árið 1972. Þann 1. apríl nk, verða liðin 100 ár frá fæðingu en hún lést árið 1995, 89 ára að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert